í Víetnam þeir veiða snákinn
skera úr honum hjartað
og gleypa það með glasi af rauðu víni
meðan það slær enn…

og hér sit ég og hugsa um
hvernig ég get komið tilfinningum mínum í orð
án þess að nokkuð fari til spillis
en það eina sem mér dettur í hug er Víetnam

verði þér að góðu…