…skýið yfir fjallinu byrjar að gráta
og tárin leka niður gróðurlausar hlíðarnar
saltvatnið safnast saman í djúpu sári
sem verður dýpra með hverri stundu…

…að lokum jafnast fjallið við jörðu
leifarnar skolast út í kalt og blátt hafið
skýin hlæja yfir vel heppnuðu verki
en hlíðarnar rísa aldrei að nýju…

…ný grasstrá vaxa á auðri jörðinni
þar sem áður var skjólið mitt…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.