Ég bjóst ekki við því að það yrði gert svona mikið mál úr þessu, þetta var nú ekkert svo slæmt og allt frekar rólegt sýndist mér þegar löggan mætti á svæðið. Og þeir sem komu á bílum þurftu flestir að skilja þá eftir, því þau voru búin að gera ráð fyrir því að fara ekki heim fyrr en seinna næsta dag. Ég náði samt sem betur fer strætó strax eftir að rútan kom á Hlemm en mamma fékk nánast sjokk þegar hún sá mig um morguninn sofandi inni hjá mér, enda bjóst hún við að ég kæmi ekki fyrr en eftir...