Er þreytt eftir skóla/vinnudaginn og mér leiðist, nenni ekki að fara að sofa. Ég er búin að skoða ALLT á b2.is, á huga.is og fleiri síðum, búin að skemmta mér með google og meira að segja búin að lesa mjög fræðandi grein um að láta hillu saman hérna á huga. Ég býst nú við að dagurinn á morgun verði mjög líkur þessum.

Svo var ég að fatta að ég missti af Supernatural
ég leit á kl. og hún var 20:14. Svo skemmti ég mér frábærlega með google og hillu samsetninguna og kl. varð allt í einu 22:30. Supernatural er kl. 22:00. Ég get ekki horft á þetta á morgun þar sem ég verð ekki heima, enginn verður heima til að taka það upp. Supernatural er það eina sem ég horfi á. :'(

Ef einhver getur látið mig hlæja þá mun hann/hún fá eitthvað mjög sérstakt í verðlaun.
Miles: 3969.64 | Kilometers: 6388.33