Ég þrumaði einu sinni búmerang í flotta jeppann hjá nágrannanum, óvart, var svona 8 ára, þjófavörnin fór á fullt og ég varð skíthrædd og hljóp heim og stóra systir mín þurfti að útskýra fyrir nágrannanum :P Svo var ég svona 10 ára þegar ég fór í elsta rússíbanann í Bakken í Kaupmannahöfn, sat alveg aftast og það var hræðilegt, vagninn bókstaflega lyftist af teinunum í brekkum, og allt var úr tréi, virkar frekar ótraust og ég var að deyja úr hræðslu…