Eins og þið hafið kannski heyrt í fréttum er góður vinur minn, Pétur Þorvarðarson 17 ára, týndur og búinn að vera það síðan á aðfaranótt sunnudags. Allt austurland er í sjokki og ekki hægt að lýsa ástandinu hérna. En ástæðan fyrir þessum korki var að biðja alla sem vettlingi geta valdið að biðja til guðs fyrir Pétri og senda honum verndarengla og hlýjar hugsanir, þótt þið þekkið hann ekki neitt, því ég trúi að bænir hafi áhrif. Þessi strákur er bara sú yndislegasta og besta manneskja sem ég þekki, og gæti aldrei gert neinum neitt. Hann á óendanlega marga vini og sum af ykkur þekkið hann örugglega. Sendið eina litla bæn til guðs og hugsið til elsku Pésa okkar ef þið hafið tíma, allt getur hjálpað…
Fyrirfram þakkir..

p.s. afsakið nickið, bjó það til þegar ég var 12 ára á hámarki gelgjunnar:S