Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Coke vs.Pepsi

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Appelsín! Coke og pepsi er viðbjóður og bragðast alveg eins (finnst mér) fyrir utan pepsi x sem er ennþá verra en venjulegt.

Re: popp tv á netið

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Jeij ég er semsagt ekki sú eina sem næ ekki popptv! Þetta hefur alltaf virkað hjá mér á netinu þangað til um daginn, þá bara allt í einu virkaði það ekki lengur… :(

Re: Hver er ykkar..

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þáttur: Friends og Gilmore Girls, myndirnar eru allt of margar, en t.d. LotR, Troy og Shrek

Re: HI5

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Bara… kynnast vinum vina þinna! Eða eitthvað þannig… hef ekki mikið notað þetta…

Re: Hitastig í skólanum

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Já það er líka alltaf skítkallt í mínum skóla! Hata það. Sérstaklega þegar maður fer niður í mötuneytið og útidyrahurðin er opin, þá er alltaf skítakuldi þar. Svo fer maður upp og hurðirnar tvær þar eru líka opnar, maður fer að loka en svo opnar alltaf einhver þær aftur! Pirringur.

Re: Brrr...!

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Mér er alltaf kallt á puttunum… hata það… Núna er mér sæmilega heitt á tánum eftir að hafa klætt mig í ullarsokka… Ég elska jólalög og finnst ekkert að því :) Ég er að fara í stærðfræðipróf á morgun og er ekki byrjuð að læra… :/ Og vinkona mín er búin að vera Brb á msn í 20 mín…

Re: Kennarar mættu ekki í skólann!

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Minn skóli var greinilega einn af örfáum þar sem næstum allir kennarnir mættu. Reyndar fór ég bara í tvo og hálfan tíma, fékk frí í einum og hálfum vegna fundar…

Re: Fjárans.

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég var bara farin að sætta mig við verkfallið, enda var hundleiðinlegt hjá mér í skólanum í síðustu viku, og ég fékk líka fína vinnu í verkfallinu og væri alveg til í að eignast pening fyrir jólin, en svo frétti ég að það verður sennilega skóli á mánudaginn. Svo hef ég heyrt bæði og veit ekki hvort er rétt… Þannig verður skóli á mánudaginn eður ei?

Re: Ein heima á baðherberginu

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Læsi… Líður bara illa ef hurðin er ólæst :S

Re: Óp

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Svo satt, horfði á fyrsta þáttinn og vá hvað þessi stelpa fór í taugarnar á mér!

Re: Píptest

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Oj píptest, ég hata píptest. Reyndar frekar langt síðan ég fór í það síðast, en ég næ minnir mig oftast um 7…

Re: hvað finnst ykkur?

í Harry Potter fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Lupin var ekki nokkurn vegin eins og ég ímyndaði mér! Mér finnst David Thewlis alls ekki passa í hlutverkið hans. Ég ímyndaði mér hann góðlegan og allt öðruvísi í útliti, og þetta ör eða klór á andlitinu var ekki alveg að gera sig. Gary Oldman fannst mér bara í lagi, en þegar þú nefnir það þá sé ég Johnny Depp vel fyrir mér sem Sirius. En hann talar ekki bresku og Sirius hefur nú líklegast verið breskur… Annars hefði hann passað frábærlega í hlutverkið. Svo fannst mér Trelawney fáránleg í...

Re: The Sims

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
http://www.hugi.is/sims ?

Re: Nöldur um svör við nöldri

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég á nú að vera búin að taka fullt af prófum í verkfallinu sem ég tek örugglega næstu daga… Svo byrja annarprófin hjá mér eftir 2-3 vikur sennilega :S En ég bjóst svosem við þessu, strax í próf þegar skólinn byrjar…

Re: Marauders map

í Harry Potter fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ekkert mál…

Re: Marauders map

í Harry Potter fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég veit bara um það sem er á WB síðunni, en það segir ekki mikið um staðsetningar… http://harrypotter.warnerbros.com/main/homepage/home.html Svo veit ég um eitt kort af galdraheiminum en það er frekar lélegt… En þar sést vatnið… http://potter-net.com/upload/images/large/24-11-2002-517.jpg

Re: Opið aftur!!!

í Harry Potter fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Fyrir þá sem vilja vita hvernig þeir komast inn, þá stendur það á http://mugglenet.com/ og http://www.snitchseeker.com/vb3/showthread.php?t=20769

Re: Pevees

í Harry Potter fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hefur hann aldrei verið með? Ég hef ekki tekið eftir því… Og veit þá ekki af hverju…

Re: námsáætlun í kennaraverkfalli

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Í mínum skóla fáum við alltaf kennsluáætlanir í byrjun hverrar annar. Ég hef samt mjög lítið nýtt mér þessar áætlanir síðustu ár en í verkfallinu koma þær sér vel. Samt hef ég ekkert lært neitt mikið… Hef bara lítinn tíma…

Re: mig vantar restina af textanum(ertu þá farin ertu þá farin frá mér..)

í Hugi fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Lagið heitir Farin og er með Skítamóral… Með hjálp Google fann ég textann: Ertu þá farin ertu þá farin frá mér Hvar ertu núna hver liggur mín leið Spyrjum hvort annað hvor fari ég einn í nótt Það er liðin smá tími og ég þessi orð Skrýtið hvað tíminn fer þér vel Nóttin siglir að mér og minningin er þín Kemur og stimplar sig inn Tíminn líður, líður án mín En þú kemur ekki í kvöld Ég bað þig svo lengi Að vera aðeins hér Hefðir þú staðið mér hjá Risin dögun er Birtist mynd af þér Sé ég alla leið...

Re: Skóli næsta mánudag!

í Skóli fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Fínt að fá kennslu aftur… þótt það verði ekki nema vika, þá verður samt auðveldara að læra sjálf heima eftir það… En mig langar samt ekki að hætta að vinna :(

Re: Björk

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég var á gangi í Barcelona fyrir nokkrum árum þegar ég heyrði í Björk út um glugga…

Re: Chicago town.....

í Tilveran fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Haha, systir mín hatar líka þegar ég hita mér þannig pitsur :P En þær eru bara svo góðar :)

Re: Hljóðfærabúðir?

í Hugi fyrir 21 árum, 6 mánuðum
http://www.tonastodin.is/
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok