Daginn.. Æi, nú er ég ógeðslega pirraður. Afhverju gat ekki verið verkfall fram að jólum eða lengur. Ég hefði verið til í það. Ekki eins og maður læri eitthvað af viti í þessum helvítis skóla. Svo er það svo rangt af ríkisstjórninni að setja lög á þetta. Ætti eiginlega bara að vera bannað. Sérstaklega lög á sjómenn og kennara. Bara rugl, þeir fara bara aftur í verkfall á næsta ári eða eitthvað. Ég er svo pirraður í augnablikinu. Hata skólann!! Svo var ég kominn í helvíti góða vinnu í verkfallinu. Pirringur að gera sig hérna, ætti kannski að flytja þetta yfir á nöldurkorkinn. En ég er of pirraður til að nenna því.