Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Afhverju

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Skólinn ætti að byrja 8., þá gæti maður sofið út eftir þrettándann :) En ég byrja samt 6.

Re: Í sambandi við skólann

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Það er einhver námskeiðsdagur í dag og starfsdagur á morgun hjá mér þannig ég fer ekki fyrr en á fimmtudaginn í skólann..:)

Re: Vá þetta er erfitt!

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég er líka nokkurnvegin búin að snúa sólarhringnum við, samt ekki eins mikið og þú… Ég þurfti reyndar að vakna kl. 7.30 í gær sem gekk frekar erfiðlega… Ætlaði svo að fara að sofa í síðastalagi 12 í gærkvöldi en sofnaði ekki fyrr en um hálf 2 og vaknaði hálf 1 í dag í staðin fyrir 10 sem ég ætlaði að gera… Þetta er samt ekki það versta… Er búin að fara að sofa um 4-5 síðustu daga…:/

Re: nenni ekki í skólann

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Naha… hörð! ;)

Re: Veðrið

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég er alveg sátt við snjóinn… En þegar það kemur rigning strax eftir snjókomu þá verð ég pisst!

Re: nenni ekki í skólann

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Múhaha… Ég fer ekki í skólann fyrr en 6. :D En samt er ég alls ekki að nenna því… Maður átti víst að læra eitthvað fyrir samræmdu í fríinu en ég er ekki búin að snerta bækurnar mínar síðan 17. des…

Re: Texti??

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Jaaaá… Þess vegna stóð ekkert í sumum korkunum hér fyrir neðan..! :P Hehe var orðin frekar pirruð á því að fólk var að senda inn korka með engu í…

Re: Rowling í Leyniklefanum

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Já ókei, ég skil…:)

Re: Flugeldar!

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég læt nú bara pabba um að borga þetta, stel svo einhverju úr pakkanum til að sprengja á þrettándanum :P

Re: Hversu mikill HP brjálæingur ertu? Krossapróf

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
21% = Ég á mér líf ;)

Re: Kók vs. Pepsi

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Léttmjólk. Ég er komin með leið á þessum Kók eða pepsi korkum, sættið ykkur bara við það, þetta er nánast það sama og alveg jafnt óhollt!

Re: Rowling í Leyniklefanum

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hehe kúl, ég hef ekki tekið eftir þessu… En ég horfði á enda myndarinnar í gær (á stöð 1 ekki rás 1, það er útvarpið) og fór þá að hugsa um hvernig Fawkes komst til Harrys í leyniklefann, því að það höfðu steinar hrunið niður og stíflað göngin, og ef Ron hafði opnað gat, af hverju fór hann þá ekki sjálfur í gegn að hjálpa Harry? Ef einhver veit svarið við þessu má hann svara mér…

Re: Jólamaturinn

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég fékk hamborgarhrygg með meðlæti og reyndar voru rjúpur líka sem ég borða ekki… Svo er það kalkúnninn á áramótunum :D

Re: Loksins...

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég vann hana ekki enda borða ég ekki möndlugraut… :/ Samt hef ég oft unnið hana, þegar ég var yngri (mamma laumaði möndlunni í grautinn minn sem ég borðaði samt ekki)

Re: Jólagjafir

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Keane, Bridget Jones og REM diskana, tvær bækur, föt, snyrtidót, eyrnalokka og eitthvað fleira… Bara sátt við það :)

Re: jkrowling.com

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ókei takk :)

Re: jkrowling.com

í Harry Potter fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Já ég veit… En mig vantar eitt svar: Over which British city did the one-year-old Harry Potter fall asleep as Hagrid took him to number four, Privat Drive? Það er bara dottið alveg út úr mér og ég er svo löt að ég nenni ekki að tékka í bókina…

Re: Laugardaginn 16th Júlí 2005!

í Harry Potter fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Já ég veit að íslenska þýðingin er ekki nærrum eins góð og enska útgáfan… En ég er ekki búin að lesa neinar af bókunum á ensku þannig ég nenni varla að byrja á því svona seint, en ég geri það kannski einhverntíman seinna.

Re: Laugardaginn 16th Júlí 2005!

í Harry Potter fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Úff… Þá örugglega einhverntíman um næstu jól á íslensku… :/

Re: ALLIR AÐ LESA

í Harry Potter fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég hef lesið nokkra spoilera en er eiginlega hætt því. Gerði það mikið með 5. bókina, leitaði um allt að spoilerum en langar það ekki núna, vil að bókin komi mér á óvart :)

Re: Skólarnir farinir að skipta sér af..

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það er held ég bannað í mínum skóla að vera bara í hlýrabol… Enda skil ég ekki stelpur sem koma á hlýrabol í skólann! En svo var verið að setja nýjar reglur í skólanum… Nú er bannað að vera í úlpum inni og það má ekki koma með teppi! Og það er sko alltaf skítkallt inni í skólanum, en neinei kennararnir vilja greinilega sjá okkur frjósa úr kulda.

Re: hvað ertu að hlusta á núna ?

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
I'll be home for christmas með Beach Boys.

Re: hæ, krakkar

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Er Hugi í Reykjavík? Ég hélt hann væri á netinu. Úff ég vona að þú sért að grínast með þetta.

Re: Ljósku setningar

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Haha þetta gerist oft fyrir mig. Eins og rétt áðan, ég var í bíl og að svara í síma þannig ég tók af mér annan vettlinginn. Eftir að ég var búin að leggja á klæddi ég mig aftur í vettlinginn og fór svo að leita að hinum… Fattaði svo að hann var ennþá á hinni hendinni!

Re: frí?

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Já þetta er ósanngjarnt… Það eru líka litlu jólin hjá mér á mánudaginn en samt engin kennsla… En það er ekkert jólaball í mínum skóla sem mér finnst fáránlegt… :(
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok