Loksins búin að fá útborgað.
Á helling af pening. Á alveg nægan pening til að kaupa skóna sem ég sá í Smáralind um daginn.
Þeir voru svo fallegir, þeir öskruðu á mig að kaupa svona skó, í minni stærð auðvitað. Þá var ég ekki búin að fá útborgað.
Svo ég beið bara, og rann upp sá dagur sem ég fékk útborgað. Og ég fór í bíó, gaman.
Daginn eftir fór ég í Smáralind, sá elskulegu skóna og spurði voða fallega hvort þeir væru til í minni stærð.
Onei, því miður.
En, hva, kemur ekki önnur sending?

NEI! Það kemur ekki önnur sending af skónum sem mig langaði í ="C Þeir eru búnir. Kannski til í Kringlunni, en neei, ég var bara að fatta það núúna =)

Tærnar mínar eru einmana, þeim langaði í nýja skó.

Og ég er með hausverk. Og vont skap. GleðiGleði.
-Tinna