Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Öxarárfoss

í Ljósmyndun fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Var ekki með þrífót þannig hún hefði bara orðið of hreyfð :/

Re: Hvað gleður í september?

í Tilveran fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ekkert… Nema það að systir mín kemur til landsins 22. eða 23. Annars er þetta bara ömurlegur mánuður. Próf og vinna.

Re: Öxarárfoss

í Ljósmyndun fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Takk :)

Re: MR Ballið

í Djammið fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Mér fannst þetta einmitt svo ömurlegt ball, sama tónlist allan tímann og það voru víst 7 DJar, heyrði engan mun á þeim. Versta MR ball sem ég hef farið á. Og bara versta ballið yfir höfuð hugsa ég.

Re: Áfram ísland!

í Raunveruleikaþættir fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Það kemur bara ekkert Vote dæmi á þessari síðu hjá mér… búin að prufa að breyta tímabeltinu en ekkert gerist…

Re: hvar!?!?!?!?!?

í Tíska & útlit fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Hehe jamm, maður tekur ekkert svo vel eftir henni. En fullt af flottum skór þar samt sem áður.

Re: hvar!?!?!?!?!?

í Tíska & útlit fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Kringlunni, á 2. hæð, rétt hjá Eymundsson og Deres…

Re: 16

í Músík almennt fyrir 19 árum, 9 mánuðum
16 Military Wives með The Decemberists, mjög gott lag :P Og Sweet Sixteen með Billy Idol…

Re: vinna með skóla

í Skóli fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ég er með 9 vaktir í september, svo tekur maður stundum aukavaktir. En þetta er u.þ.b. þriðja hvor helgi og tvö kvöld í viku. Á eftir að sjá hvernig það mun ganga :)

Re: hvar!?!?!?!?!?

í Tíska & útlit fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Focus eru með flotta Vans skó, en veit ekkert hversu stór númer þau eru með.

Re: Hvaða lag?

í Rómantík fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Hehe þetta kemur bara með tímanum ;)

Re: Hvaða lag?

í Rómantík fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Hoobastank - The Reason ? http://www.google.com/search?hl=en&q=lyrics+I%27m+not+a+perfect+person Ekki erfitt að gúgla þetta fyrst þú manst svona mikið úr textanum :)

Re: Stærðfræðikennari MR!! :D

í Skóli fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Haha hún er svo mikil dúlla :P Var með hana í fyrra… Getur verið pirrandi á köflum en annars er hún alltaf voðalega indæl. Auðvelt að gera grín að henni reyndar :D Margir líkja henni við möldvörpu… :P Svo er eitt gott við þennan kennara, að maður þarf aldrei að læra heima því hún kíkir aldrei á heimavinnuna manns heldur reiknar hún heimadæmin sem hún setti fyrir uppi á töflu þannig maður getur bara skrifað upp eftir henni :) En núna er ég komin með annan stæ.kennara þannig maður verður víst...

Re: MR bekkjalistar

í Skóli fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Reyndar voru tveir í fyrra. En bara einn í hitteðfyrra og allt á undan því, svo ég viti.

Re: Box!!!

í Skóli fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Kannski sniðugra að setja þetta á viðeigandi áhugamál.

Re: hahahah bekkurinn minn

í Skóli fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég hef alltaf verið í bekk þar sem stelpurnar eru miklu fleiri en strákarnir. 20 stelpur og 5 strákar t.d. Núna er það aðeins jafnaðra, samt ábyggilega aðeins fleiri stelpur.

Re: Innkaup

í Skóli fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Já ef þú tekur hana með þér á hverjum degi þarftu náttúrulega ekki eins mikið af bókum.

Re: Innkaup

í Skóli fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Hehe já þetta er ekki lengur eins og í barnaskóla þar sem maður fær lista yfir hve marga blýanta maður á að kaupa :) En í fyrra (1. ár) eyddi ég u.þ.b. 5 stílabókum og 2 reikningsbókum, en ég er líka á málabraut, getur reiknað með að þurfa fleiri reikningsbækur ef þú ert á nát.braut. Svo bara ein glósubók fyrir hvert tungumál og 1-2 A4 möppur fyrir lausablöð. Fínt að eiga nokkrar möppur með lituðu baki líka. Svo er alltaf hægt að kaupa fleiri stílabækur seinna þegar þig vantar það ;) Svo...

Re: Bókakostnaður.

í Skóli fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég veit, en bækurnar sem systir mín ætlaði að selja eru bækur sem eru notaðar aftur, hún var meira að segja búin að fletta þeim upp á vefsíðunni þeirra í Skólavörubúðinni þannig hún hefði alveg átt að geta skilað þeim inn.

Re: Vantar ráð! (Um útlandaferð)!!!

í Ferðalög fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Hmm, ef þú ert að tala um lönd svipuð Búlgaríu, þá satt.

Re: Bókakostnaður.

í Skóli fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég verslaði allt sem ég gat í Skólavörubúðinni, þar var allt sem ég þurfti nema tvær bækur ódýrara en í Griffli, og svo fékk ég auk þess næstum allt örlítið ódýrara en stóð á verðmiðunum. Reyndar var einhver algjör gribba sem tók á móti notuðum bókum og tók til dæmis ekki við fullt af mjög vel förnum bókum frá systur minni, og gaf enga ástæðu fyrir að taka ekki við þeim.

Re: Vantar ráð! (Um útlandaferð)!!!

í Ferðalög fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Jájá, það eru vasaþjófar og vandræði allsstaðar, en bara miðað við hvað þetta var mikið hjá þeim á Búlgaríu þá finnst manni þetta verra en á mörgum öðrum stöðum. En þetta er nú bara það eina sem ég hef heyrt um Búlgaríu og það á auðvitað ekki við alls staðar þarna. En þau pössuðu sig nú alveg, nema þetta eina skipti þegar stelpa var ein á ferli um kvöld og var stungin… En annars ferðuðust þau alltaf um í hópum og sumir keyptu víst piparúða til að verja sig :P

Re: Vantar ráð! (Um útlandaferð)!!!

í Ferðalög fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Miðað við sögurnar sem ég hef heyrt frá systur minni og fleiri Verzlingum sem voru þar í útskriftarferð er þetta ekki besti staðurinn til að fara á.

Re: Styttist í skólann

í Skóli fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Frönsku.

Re: hvar varstu 9/11

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég var í skólanum þegar þetta gerðist, í 7. bekk minnir mig, og var svo heima hjá vinkonu minni þegar mamma hringdi eða ég hringdi í hana og hún sagði að það gæti verið að það yrði ekki badmintonæfing hjá mér þennan dag… Svo hringdi ég í íþróttahúsið og konan þar varð nánast hneyksluð á því að ég væri að spyrja að þessu, auðvitað var æfing. Svo sá ég þetta í sjónvarpinu um kvöldið. Eins og margir kippti ég mér ekki mikið upp við þetta strax, tók smá tíma að fatta þetta alveg.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok