Hæhæ,

Ahmm Ahmm.. einn vælukorkur á dag kemur skapinu í lag;)
Geri samt ekki einn vælukort á dag, frekar svona á mánuði en anyway….

Ég er útí Lúxemborg núna hjá bróður mínum og mjög gaman að hitta hann og fjölskylduna hans og svona og svo förum við til Ítalíu á morgun og verðum með ættingjum okkar og fjölskyldunni og þetta á að vera allt frábært! Nema.. ég er veik:) Heppin ég ekki satt? nei.. ég s.s. var búin að vera kvefuð og svona mikið vesen en var að hressast og fór að mæta í vinnuna og svona, svo í gær þegar við vorum að fara þá fæ ég bara geðveik hálsbólgu og beinverki og hita!

Jáhmm.. bömmer… ég er inni á netinu bara í mínum veikindum á meðan allir eru úti að gera eitthvað skemmtilegt örugglega …

Mér leiðist…