Komiðið sæl öll sömul, og gleðilegt sumar=)

Þar sem ég er að fara út til Portúgals með kærastanum og vinum í djamm-/sólarferð langar mig að fá smá upplýsingar.

Ég hef ekki farið til sólarlanda síðan 1997 þá var ég 10 ára og klæddist þá bara í kjólum og stuttbuxum og þess konar barna fatnaði.

Nú veit ég ekkert hvað er möst að taka með sér í svona ferð þ.e.a.s af fötum.

Einhverjir sem geta gefið góð ráð í sambandi við hvað er nauðsynlegt að taka með sér?, svo ég get kanski farið að huga að innkaupum eða fengið lánað einhverstaðar það sem ég á ekki.

Takk takk=)