Góð grein um kvikmynd sem olli mér vonbrigðum. Ætli maður verði ekki að horfa á hana aftur. Annars fýla ég allt annað sem ég hef séð með Kubrick einsog 2001, A Clockwork Orange, Eyes Wide Shut, Full Metal Jack og The Shining.
Nýlega sá ég kvikmyndina Zoo sem er ein fáránlegasta mynd sem ég hef séð! Einnig finnst mér Deuce Bigalow: European Gigolo skelfileg og svo finnst mér Son of the Mask algert ónýti!
Þetta lag er með Heiðari úr Botnleðju og kallar hann sig ‘The Viking Giant Show’. Lagið heitir the Cure. Hérna er linkur þar sem þú getur náð í það www.myspace.com/thevikinggiantshow Ef þú hefðir verið á /rokk hefðiru séð það þar, þetta er gullöldin vinur :)
Mér fannst myndatakan mjög góð, leikararnir stóðu sig flest allir mjög vel nema strákurinn sem lék Vidda eða Didda? fannst mér ekki svo sannfærandi. Tónlistin var mjög góð, og mér fannst endirinn alveg hreint ágætur þangað til að þau voru stödd í DK. Söguþráðurinn var góður og meltanlegur. Heilt yfir séð var ég mjög sáttur með Veðramót. Einnig hafði ég mjög gaman af Astrópíu.
Þetta lag heitir Hold Tight og er með hljómsveitinni Dave Dee, Dozy, Beaky, Mick & Titch. Ég held alveg örugglega að þú sért að tala um þetta. Finnur þetta líklega á Limewire :)
Þetta er rosalega góð viðbót fyrir liðið hjá Hull. Hann á eftir að hjálpa þeim mikið tel ég en það þarf meira en einn góðan leikmann til að allt liðið geri góða hluti. Verður spennandi að fylgjast með þessu :)
Ég byrjaði að halda með Bolton Wanderes þegar Jay Jay Okocha gekk liðs við þá. Nú er hann hinsvegar farinn en ég held áfram að styðja þá þó þeir spili oft leiðinlegan bolta og séu erfiðir viðureignar við mitt uppáhalds lið, Arsenal.
Ég man þegar ég var yngri og reyndi að vera harður á meðal vina minna og horfði á The Excorcist og The Shining. Hef líklega aldrei skitið jafn mikið í brókina áður. Nú hinsvegar hafa þær misst “ljómann” fyrir mér einsog Sveppi orðaði það í Astrópíu. Nú pælir maður í svo mörgum hlutum á bakvið kvikmyndirnar. En þegar maður var yngri var maður ekki að hugsa útí svona hluti og myndirnar náðu að halda mér skíthræddum allann tímann!
Þetta er skemmtileg spurning og ég er búinn að velta svarinu frekar lengi fyrir mér en ætli það sé ekki bara We Are the Champions með Queen. Miklu þekktara en Stairway to Heaven tel ég.
Það sem mér finnst merkilegast við Jón Gnarr er það að hann komst ekki í gegnum Leiklistarskólann. Þannig hann gerði allt sjálfur, bjó til eigin sketcha og tók sjálfan sig upp og hvað eina. Það eru sannir listamenn líka!
Ég ber miklar mætur á þessum tónlistarmanni. Gríðarlega góður og svalur líka. Er þessa dagana að missa mig yfir ‘Ride a White Swan’ og hlustandi á plötuna ‘Electric Warrior’ sem er æði!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..