Ég vona að í framtíðinni gefuru þessari kvikmynd annan séns vegna þess að fyrir hvern þann Íslending sem elskar landið sitt og jafnvel hefur gaman af Sigur Rós er þetta einstök fegurð. Mér fannst gaman líka að sjá hversu furðulegir þeir eru í raun og veru (kannski f. utan bassaleikarann). Einnig hafði ég gríðarlega gaman af því að sjá þá spila í Djúpuvík þar sem ég fór alltaf í sveit þar er ég var yngri og faðir minn er ættaður þaðan. Mæli með því að þú kíkjir á hana aftur einn daginn....
Mæli með þessari mynd, sem mikill Bítla maður meir að segja. Frábær lög og skemmtileg kvikmynd. Reynir þó að vera eitthvað artý partý á einum kaflanum en það sleppur fyrir horn.
Flott grein! En Pires var talsvert betri en Rosicky er í dag (ennþá). Pires var til að mynda alltaf næst markahæstur á eftir Henry með 15 mörk allavega. Annars sé ég fram á bjarta tíma hjá Arsenal og vona að þeir haldi stöðugleika sínum sem þeir virðast nú hafa.
Wenger geri þetta einna best en mér finnst liðið sterkast svona. Almunia Sagna-Toure-Gallas-Clichy Hleb-Flamini-Fabregas-Rosicky Persie-Adebayor Þú hefðir svo átt að bæta þeirri spurningu við hverja ætti að selja. Ég vill sjá Senderos, Song og jafnvel Lehmann burt. Djourou vill ég fá aftur úr láni og svo má gefa mönnum einsog Diarra, Gilberto og Fabianski meiri sénsa. Annars þurfum við engan í janúarglugganum, liðið er gott einsog það er.
Haha ég er kannski skrýtinn en ég er ekki þunglyndur og glataður gæi sem hef ekkert annað að gera en að hanga á huga og svara öllum kommentum og sleikja upp eldri þunglynda metal hausa.
Það er rosalega erfitt að svara svona spurningum. En hjá mér yrðu það áreiðanlega eitthver gömul klassísk lög. E.L.O. - Strange Magic John Lennon - Imagine Procul Harum - A Whiter Shade of Pale the Stranglers - Golden Brown the Zombies - Time of the Season Þetta er svona það sem mér datt fyrst í hug..
Sjálfur safna ég geisladiskum og ég nýti mér niðurhalið til að kynna mér efnið áður en ég kaupi það. Það gerist örsjaldan að ég kaupi mér eitthvað sem ég hef ekki kynnt mér á netinu. Ef það gerist þá er það bara með stórum hljómsveitum og þekktum. Þetta er að sjálfsögðu gott fyrir suma og slæmt fyrir aðra. Slæmt fyrir þá stóru sem eru að leggja mikinn pening og puð í að koma efninu sínu til kaupenda en hinsvegar gott fyrir minni tónlistarmennina. Myspace síðurnar eru t.d. stórsniðugar að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..