Ég gerði ráð fyrir að hann fengi sér alcatel módem á 24 þúsund (sem eru að mínu mati bestu módemin í dag) og svo netkort, sem kostar ca: 3000. Miðað við þetta þá er stofnkostnaðurinn orðinn 34000 kr. Það er alveg rétt að maður getur sloppið með 22000 kr í stofnkostnað með því að kaupa innbyggt módem, en ég hef heyrt svo slæmar sögur af því að ég myndi ekki mæla með því. Eflaust hafa margir góða reynslu af þeim en ég hef ekki heyrt neinn lenda í vandræðum með að setja upp alcatel módemin,...