Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: dýrasta dvd

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ábyggilega Universal Monster Legacy gift settið sem ég keypti í Elko í vetur. Það kostaði 6900 kr. en þetta voru samt frábær kaup því að í settinu eru alls 19 myndir á 15 diskum með frábæru aukaefni og einnig fylgdu með Drakúla, Frankenstein og Wolf Man bust. Linkur á Amazon: http://www.amazon.co.uk/gp/product/B0002W11TU/202-2250325-1679007?v=glance&n=283926 Annað mjög dýrt sett sem ég keypti var Star Wars trílógían en hún kostaði eitthvað yfir 6000 kr. þegar hún kom fyrst út.

Re: AC/DC?

í Gullöldin fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Já eflaust, maður er orðinn svo vanur því að heira Brian Johnson syngja þessa frægu slagara eins Back In Black og Hells Bells að maður getur bara einhvernveginn ekki ýmindað sér lögin öðruvísi.

Re: Frægir með Asperger?

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Vó, ég veit ekki hvort þetta er svona alvarlegt. Allavegana líður mér ekkert illa og ég er alveg nokkuð sáttur við lífið þó að ég eyði mestum mínum frítíma einn. Annars hef ég farið fjórum sinnum til sálfræðings undanfarið en ég get ekki sagt að það hafi gert mér neitt gagn enda var hann bara alltaf að spyrja um það sama og virtist m.a. hafa mjög mikinn áhuga á því hvort ég væri samkynhneigður eða ekki.

Re: Bestu Kaup?

í Gullöldin fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ætli það hafi ekki verið þegar ég fór til Slóveníu síðasta sumar. Keypti þá alveg brjálæðislega mikið af plötum enda alveg hræódýrt land.

Re: AC/DC?

í Gullöldin fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þó að Bon Scott sé vissulega miklu flottari söngvari en Brian Johnson sé ég hann ekki alveg fyrir mér syngjandi þessi lög.

Re: Frægir með Asperger?

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég hef verið að velta því fyrir mér svolítið hvort ég gæri verið með væga gerð af Asperger enda eiga mörg þessara einkenna við mig. Ég á einmitt oft mjög erfitt með samskipti og forðast helst augnsamband og finnst mjög óþægilegt að tala um það hvernig mér líður og tilfinningar mínar. Sömuleiðis hef ég mjög afmörkuð áhugamál og hef áhuga á hlutum sem eru heldur óvenjulegir fyrir minn aldursflokk. Ég er einnig mjög vanafastur (t.d. verð ég alltaf að sitja á sama stað í bílum) og hef vanið mig...

Re: Bezta framhaldsmyndin?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Veit, hún er samt framhaldsmynd. Þetta er framhald af sögunni, þess vegna: Framhaldsmynd.

Re: Bezta framhaldsmyndin?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Hvað er Kill Bill Vol.2 annað en framhald?

Re: Alexander?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þú veist að þú getur lesið umfjallanir og umræður um myndir á imdb. Annars fannst mér hún frekar leiðinleg og hún er alveg HRÆÐILEGA langdregin.

Re: Af hverju hlusta ég á jazz?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þetta var eins með mig, ég hafði verið búinn að læra klassískt píanó frá 7 ára aldri og síðasta árið sem ég lærði fannst mér það svo grútleiðinlegt að ég kveið fyrir því að fara í tíma. Síðasta haust skipti ég svo yfir í Jazzpíanó og með því opnaðist alveg nýr heimur fyrir mér. Ég sótti um í FÍH í vor en komst ekki inn enda sóttu um rúmlega 300 manns og tóku þeir ekki inn nema 9. Ég mun samt án nokkurs vafa halda áfram og ætla að fara í það bráðlega að finna góðan kennara þar sem hinn var...

Re: Af hverju hlusta ég á jazz?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Eitt sem ég vil spyrja þig um er hvað varst þú eiginlega gamall og hvað varstu búinn að æfa lengi þegar þú komst inn í FÍH?

Re: Af hverju hlusta ég á jazz?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þetta er þetta alls ekki óvenjuleg leið til að uppgötva tónlist, reyndar er þetta eiginlega eina leiðin til þess að geta uppgötvað tónlist sem er allt öðruvísi en sú sem maður er að hlusta á. Maður verður að gera það í skrefum því eins og flestir (þó alls ekki allir) vita þá er tónlist þróun og ef maður ætlar að geta fílað upphafið verður maður að fara leiðina sem hún þróaðist eftir. Fyrir nokkrum árum hlustaði ég eingöngu á tónlist eins og Linkin Park og þannig MTV popptónlist og fannst það...

Re: Bezta framhaldsmyndin?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Mér dettur fyrst í hug The Empire Strikes Back.

Re: Elvis

í Gullöldin fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Það er bara því miður ekki þannig.

Re: jimi hendrix

í Gullöldin fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Tilhvers samt að feika svona, ef þetta væri alvöru væri þetta ekkert sérstök mynd.

Re: Gömul notendanöfn

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Mitt var therocker en ég breytti því einfaldlega vegna þess að ég fór að hlusta á fjölbreyttari tónlist.

Re: Million Dollar Baby

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Já, ég veit. Hann hefur víst komið með hana á Óskarsverðlaunin nokkrum sinnum.

Re: Million Dollar Baby

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Já kallinn er nú einu sinni orðinn 76 ára gamall, en hann verður samt alltaf einn svalasti maður veraldar.

Re: Million Dollar Baby

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Já auðvitað er hann meikaður og fixaður upp allur en þetta var samt soldið skrítið. Heppin fá að vera í myndinni, var hann mikið ellilegri en í Million Dollar Baby?

Re: DVD í Elko

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Uhhh nei, þess vegna var ég að spurja.

Re: DVD í Elko

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Það er eitthvað annað en ég hef kynnst, kannski komstu bara á vondum degi. Annars myndi ég nú ekki segja að allar íslenskar verslanir séu með lélega þjónustu, og hvaða verslun er Gallerí eiginlega.

Re: Hvaða mynd?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Var einmitt að sjá hana í fyrsta skipti í kvöld, alveg frábær mynd.

Re: DVD í Elko

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Íslenskur þá. Það er allavegana oftast enskur sem er fínt, reyndar er ég orðinn svo vanur því að hafa bara enskann texta að mér finnst það stundum skrítið þegar það er íslenskur á.

Re: DVD í Elko

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Á Hverfisgötunni nálægt Regnboganum minnir mig, ef þú ert hjá Nexus þá labbarðu bara niður Hverfisgötuna svolítinn spöl þangað til þú sérð rauð hús og á einu er skilti með nafninu.

Re: Trivia 18 - 2006

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Mér gekk betur en ég bjóst við enda var sumt eins og t.d. fyrsta spurningin bara gisk (ég hef ekki einu sinni séð þessa mynd).
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok