Ég var að horfa á Million Dollar Baby rétt áðan, sem btw er frábær mynd, og ég komst ekki hjá því að taka eftir því hvað Morgan Freeman og Clint Eastwood eru orðnir viðbjóðslega gamlir og krumpaðir. Ég veit alveg að þeir eru engin unglömb lengur en þetta var svona svolítið sjokk þar sem maður er svo vanur því að sjá þá sem þessa ofursvölu gaura sem virðast bara ekki getað orðið gamlir.

Hvað finnst ykkur?