Í tilefni þess að einn besti myndasagnahöfundur allra tíma hefði um þessar mundir orðið 100 ára ákvað ég að senda inn mynd af hans allra besta sköpunarverki.
Mynd tekin á Foo Fighters tónleikunum 2005. Gæðin eru ekki sem best enda er myndin tekin á GSM síma en samt hefur mér alltaf fundist þetta sjónarhorn ógurlega flott.
Söngvarinn og trompetleikarinn Chet Baker. Útgáfa hans af laginu That Old Feeling er sennilega það Jazzlag sem ég hef hlustað á hve oftast á enda er þetta alveg einstaklega skemmtileg og afslöppuð tónlist.
Kvikmyndaleikstjórinn Tim Burton sem er maðurinn á bakvið meistaraverk eins og Ed Wood, Edward Scissorhands, Beetlejuice og The Nightmare Before Christmas. Einn af mínum allra uppáhalds.
Snillingurinn David Lynch sem gerði m.a. Eraserhead, Blue Velvet, Twin Peaks og Mulholland Drive. Ég hef undanfarið verið að kynna mér verk hans og er hann orðinn einn af mínum uppáhalds leikstjórum.
Spænski leikstjórinn Pedro Almodóvar sem hefur gert m.a. myndir eins og Todo Sobre Mi Madre (All About My Mother), Hable Con Ella (Talk To Her) og Bad Education. Algjör Snillingur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..