Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hvaða kvikmynd?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Lost Highway af því að ég var að kaupa hana í dag.

Re: american beauty tónlist

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Bara svo þú vitir þá stendur oft hvaða lög eru í myndum í creditlistanum og hver samdi og flutti þau. Tilhvers varstu samt að posta þessu fyrst þú varst þegar búinn að finna þetta út.

Re: Narnia!

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Þú ert nefnilega ekki að senda inn myndir bara til að fá stig.

Re: Komið!

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Það eru nú bara síðustu þrír tónlistarmennirnir af þeim sem þú nefndir sem mættu teljast fullgildir blúsarar.

Re: Sleepy Hollow og Big Fish

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ég vil þakka þér fyrir þetta einstaklega hjálplega og gáfulega svar. Ég sé að þú ert greinilega mjög fróður um kvikmyndir og ert meira en tilbúinn að hjálpa öðru fólki í leit að góðum myndum. Svona að öllu gamni sleppt, fáðu þér líf og hættu að hanga í tölvunni og þykjast vera harður.

Re: Trivia 21- 2006

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Já, þetta var á góðri leið með að verða eins og einhverskonar samræmd kvikmyndapróf.

Re: Hvaða mynd?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Það hlaut að vera, flestir sem horfa annaðborð á kvikmyndir eiga nú meira en 7 myndir. Annars segir DVD magn alls ekkert allt, líttu bara á Liverpool hann á frekar lítið safn en er samt stjórnandi hérna.

Re: Hvaða mynd?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þetta er alveg rosalegt DVD safn sem þú átt(ekki meint sem móðgun samt).

Re: Rodney Skinner- LXG

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég verð nú að segja það að mér fannst þessi mynd frekar léleg.

Re: syd látinn

í Gullöldin fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Já, ég var bara að fletta í gegnum Huga og sá þetta síðan hérna. Mér brá soldið við þetta enda var ég að lesa um hann á netinu fyrir stuttu og var að velta því fyrir mér hversu lengi hann ætti eftir að lifa. En jæja, allavegana hvíl í friði meistari Barrett.

Re: Kingdom of Heaven: 4-Disc Director's Cut

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Annars lítur þetta út fyrir að vera ekkert smá flott sett, allavegana er hlustrið geggjað flott.

Re: Mystery

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Chinatown og L.A. Confidential eru báðar frábærar myndir og svo geturðu náttúrulega kíkt á allar þessar klassísku myndir eins og Citizen Kane, Hitchcock myndir, The Third Man, The Maltese Falcon (hef samt ekki séð hana), The Big Sleep og ef þig langar að sjá eitthvað öðruvísi mæli ég með David Lynch t.d. Blue Velvet, Mulholland Drive, Lost Highway og svo Twin Peaks þáttunum.

Re: Kingdom of Heaven: 4-Disc Director's Cut

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Einhvernveginn fannst mér þessi mynd bara eins og einn stór trailer. Það var bara stokkið úr einu atriði í annað og oft virtist ekki vera neitt samhengi á milli eins atriðs og þess næsta.

Re: Matur núna?

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Farðu á Hamborgarabúllu Tómasar.

Re: sundlaugir

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Nei, en ég man að ég pissaði stundum í sturtuna.

Re: Roger Waters á Hróarskeldu

í Gullöldin fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Það er kannski þannig þegar það er orðið eins og Roger Waters, s.s. löngu orðinn heimsfrægur og ríkur og gæti þessvegna bara hætt alveg að vinna og bara lifað lúxuslífi það sem eftir er ævinnar. En heldur þú virkilega að svona fólk hafi bara verið heppið. Vissulega spilar heppni þarna stóran hlut enda skiptir það mjög miklu máli í svona bransa að vera á réttum stað og á réttum tíma en það þarf líka mikið meira til. Menn eins og Roger Waters væru ekki í þessari stöðu ef þeir væru bara...

Re: Roger Waters á Hróarskeldu

í Gullöldin fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Hefur semsagt frægt fólk aldrei þurft að hafa fyrir neinu? Þeir sem hafa virkilega hæfileika og hafa öðlast frægð í gegnum þá hafa flestir þurft að leggja töluvert meira á sig heldur flest annað fólk. Það eru bara þessar Idol stjörnur og MTV One-hit-wonders sem þurfa það ekki en það fólk endist oftast ekki nema 15 mínútur eða svo.

Re: Ekki taka það!

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þá breytast þær bara í spammara í staðinn og fleiri gaurar eins og Zophonias koma.

Re: Trivia 19 - 2006

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Í spurningu númer 8. stóð Bandarískur leikstjóri þegar trivian kom fyrst upp sem er soldið villandi þar sem Hitchcock er Breskur.

Re: Gullaldarlagalisti og virkni áhugamálsins!

í Gullöldin fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Það er ekkert ólöglegt að benda fólki á lög og tónlist.

Re: Gullaldarlagalisti og virkni áhugamálsins!

í Gullöldin fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Annað sem væri hægt að gera er að sýna allar hljómsveitirnar/tónlistarmennina á listanum og síðan þegar maður myndir klikka á hvert nafn opnaðist ný síða þar sem lögin væru sýnd. Einnig ef þetta myndi ganga mjög vel væri fólk kannski tilbúið að fara skrefinu lengra og jafnvel skrifa umfjallanir og upplýsingar um þessa listamenn sem væri hægt að setja þarna.

Re: Gullaldarlagalisti og virkni áhugamálsins!

í Gullöldin fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég held að það væri betri hugmynd að setja bara nöfn á hljómsveitum og tónlistarmönnum inná svona lista. Ef það á að setja að setja mörg lög með hverri hljómsveit/tónlistarmanni eins og t.d. öll frægustu lögin með Jimi Hendrix, Led Zeppelin, The Doors, Queen og öllum þessum gaurum sem fólk dýrkar hérna verður þetta hreinlega bara of mikið. Ég meina hver nennir að skoða tugi af síðum með nöfnum á lögum bara til þess að finna sér eitthvað nýtt til að hlusta á.

Re: Roman Polanski,

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Afhverju banna þau þér þá að eignast hana? Ég meina, það er varla neitt í þessari mynd sem einhver sem er ekki mjög trúaður eða viðkvæmur myndi þykja óviðeigandi.

Re: Roman Polanski,

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Vá eru foreldar þínir strangtrúaðir Kaþólikkar úr Biblíubeltinu, eða hvað?!

Re: Trivia

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Já, svona á að gera það! Þetta fyrstur rugl er orðið verulega þreytandi sérstaklega þegar fólk er bara að svara og gefa álit til þess eins að segja fyrstur, ég meina hvað hafið þið útúr þessu það er öllum skítsama hvort þið séuð fyrst eða ekki.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok