Þegar ég var 7 ára þá fékk ég mér svona venjulegt gat í eyrað, ætlaði að fá mér báðu megin, en hitt kom ekki fyrr en ári seinna eða svo, því mér fannst þetta svo rosalega vont. Hef alltaf verið verulega nálahrædd, og kemur það vel fram á húðlitnum mínum þegar ég sé nálina rétt áður en ég er götuð. Svo kom næsta ekki fyrr en ég var 12 eða 13 man ekki alveg, en þá var komið að naflanum, ég fór á tattoo og skart með mömmu minni. Var búin að plana að vera rosalega “cool” allan tíman og gekk það...