Var aðeins búinn að lesa mér til um söguna á heimasíðunni og skv. henni var það r71. Leit annars við í dag og skoðaði gripina, þessi hjól hafa svaka “character”.
Kíkti aðeins á netið og þetta er frekar umdeilt atvik og ásakanir í gangi um að frönsk stjórnvöld hafi reynt að hylma yfir ástæðuna fyrir brotlendingunni með því að kenna mannlegum mistökum um til að hafa ekki áhrif á hugsanlega framtíðarsölu vélarinnar. Mun þetta hafa gengið svo langt að skipt var á svörtum kössum áður en þeir voru afhentir yfirvöldum til rannsóknar. http://www.airdisaster.com/investigations/af296/af296.shtml http://catless.ncl.ac.uk/Risks/7.22.html#subj1
Fínar greinar hjá þér. :) Mig minnir samt endilega að Airbus skógarflugið hafi verið með þeim hætti að flugmennirnir hættu við lendingu og voru að reyna að pulla upp á meðan að autopilotinn var ennþá að reyna að lenda vélinni.
Erfitt að verðleggja hlutina. Sér mikið á þeim. Hvað sættirðu þig við að fá fyrir þá? Held þú getir alveg gleymt því að fá e-ð fyrir balsakubba sem slíka. ;) Farðu á frettavefur.net/Forum/ það er alla veganna einn þar sem er að auglýsa eftir flugmódeli. Og svo gæti borgað sig að setja inn auglýsingu þar. Hægt er að fá byrjendapakka með öllu sem til þarf á 59.900 þannig að þú mátt passa þig að vera ekki það nálægt því að menn kaupi frekar nýtt. En eins og ég segi þetta er oft huglægt mat og...
…leiðinda enter :) … ef þú ert að tala um http://www.islandia.is/aeroweb/islenski_flugvefurinn/fmi.htm þessa síðu sem Flugmálafélagsvefinn þá er hún ekki og hefur aldrei verið á vegum Flugmálafélagsins að mér vitandi.
Kannski bendir okkur á hvar þú fannst Flugmálafélagsvef sem hefur ekki verið uppfærður síðan 2002? Það er aftur á móti komin upp ný vefsíða fyrir Flugmálafélagið og er hún á slóðinni, http://www.flugmal.is/
Skv. Hagstofunni eru rétt rúmlega 104.000 heimili í landinu þannig að miðað við afnotagjöld á bilinu 2.500-3.000 þá erum við að tala um 260.000.000 - 312.000.000 milljónir á mánuði
Þurfti e-n tíma að leysa svipað dæmi í c# og það voru nú talsvert færri línur. Ertu búinn að kíkja á síður úti í hinum stóra heimi og kanna hvað þú finnur þar?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..