Gott dæmi um BT. Samsetningardeild, hvað skyldi hún gera??? Setja hluti saman skyldi maður ætla. Vinkona mín keypti tölvu þar og bætti við hana betra skjákorti og meira minni. Þegar ég leit á hana til að skoða græjuna vantaði ALLT sem hún keypti auka! Þá var hringt í BT og skiptiborðið benti á samsetningardeild. Þeir voru eitthvað óskýrir í svörum en loksins tókst mér að toga upp úr þeim hvað þeir gera. Þeir ná í skjá, tölvu, lyklaborð, mús og aðra fylgihluti og setja þá saman á einn stað....