Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Af hverju? (1 álit)

í Netið fyrir 19 árum
Af hverju er hætt að koma hljóð í hátlara mína þegar ég er að reyna að hluta á útvarpið á netinu. allar tengingar eru í lagi en það vantar eitthvað? hugmyndir vel þegnar!

MSN (3 álit)

í Netið fyrir 19 árum
Nýlega náði ég í 6.2 af MSN og setti það upp í tölvunni minni. En svo fóru undarlegir hlutir að gerast. Ef ég slökkti á tölvunni og ræsti hana kannski daginn eftir þá var MSN 6.2 horfið en lítill grár kassi kom þar sem mér var gefið möguleikar á að installa MSN 6.2, annað hvort yes eða no. Síðan tekur X tími við að koma þessu í gegn og stundum þarf ég að tvíræsa tölvuna, samkvæmt beiðninni á meðan install stendur. Stundum heppnast það að ég komist inn á MSN og stundum ekki. Veit einhver hvað...

Íslenskar gæsalappir! (4 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum
Ég hef séð nokkuð margar sögur hérna inni með enskum gæsalöppum sem ég er alfarið á móti í Íslenskum smásögum. Svo mér datt í hug að segja ykkur frá aðferð sem hægt er að breyta því þannig að hægt sé að nota íslenskar gæsalappir. Þetta á við um ritvinnsluforritið word. Afar einfalt, fljótlegt og þægilegt. 1. Veldu INSERT og farðu í SYMBOL 2. FONT reitinn hef ég Times New Roman 3. Í SUBSET reitinn hef ég BASIC LATIN 4. Leitaðu að þeim tákni sem þú þarft 5. Ýttu á SHORTCUT KEY hnappinn 6....

Gaman! (1 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum, 1 mánuði
Nú er gaman. Komin ein saga. Flott! Ég sem beið eftir andlátsfrétt þessa áhugamáls í morgunblaðinu. En sem betur fer er aðeins farið að lifna yfir þessu. Til hamingju með það!

Taka á sig rögg eða............. (2 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum, 1 mánuði
Annað hvort verður gert rögg í því að laga stöðuna á þessu áhugamáli eða það verði auglýst jarðaför þessa áhugamáls á huga.is í morgunblaðinu.

Mánudagsskákþrautin! (2 álit)

í Skák og bridds fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Hérna er ég með skákþraut handa ykkur! Vona að þið njótið hennar og ég gef upp lausnina síðar þegar þið eruð búin að reyna. Þessi skákþraut er frekar hugsuð fyrir þá sem eru að byrja en þið sem eruð kominn lengra megið líka reyna ykkur á henni. Hvítur er með tvo biskupa á f6 og g6 og kóng á b6. Svartur er bara með kónginn á c8. Hvítur á að máta í þriðja leik. En hvernig mátar hann í 3 leik? Endilega reynið og góða skemmtun.

Upp með skákina! (2 álit)

í Skák og bridds fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ágætu skákunnendur! Það er ljóst að skákáhugamálið hér á huga er því miður í mikilli lægð og við því þarf að bregðast. Til dæmis er síðasta grein frá 12 janúar 2005 og ekkert komið þangað inn eftir það. Ég veit að það eru margir góðir skákmenn sem kíkja hérna inn og ég trúi ekki öðru en að þeir geti sett nokkrar línur niður á blað og skrifað smá greinarstúf. Hér mætti vera spes korkur eða þráður þar sem skákmenn geta glímt við skákþrautir og lausnirnar kæmu svo að viku liðinni eða þá að hægt...

Gleðilegt ár! (0 álit)

í Skák og bridds fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Vil óska ykkur öllum skákmenn góðir gleðilegs nýs árs með von um góða sigra á árinu nýja ykkur til handa. Kv stefanbh

Eftirhermur! (6 álit)

í Skák og bridds fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það er ekki alltaf happadrjúgt að herma eftir leikjum andstæðingsins! Dæmi! 1. d4 - d5 2. Dd3 - Dd6 3. Dh3 - Dh6 4. Dxc8 mát.

Til varnar! (1 álit)

í Skák og bridds fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Því miður er það staðreynd hér á þessu áhugamáli að inn koma óþroskaðir einstaklingar með yfirlýsingar um að skák sé ekki íþrótt. Í rökum sínum segja þessir óþroskuðu einstaklingar að íþrótt sé þegar fólk er á hreyfingu. En eins og við vitum sem stundum skák þá sitjum við og hreyfum taflmennina fram og til baka. En af hverju nefna þessir óþroskuðu einstaklingar ekki íþróttir eins og hestamennsku sem er kölluð íþrótt? Þar sitja hestamenn á baki hestsins og láta hann um allt erfiðið og ef ekki...

Skákunnendur! (0 álit)

í Skák og bridds fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Gleðileg jól og farsælt komandi ár! Meigi skákin verða ykkur hliðholl á nýju ári. Skákunnendur! Gerum þetta áhugamál meira virkt en það er í dag. ÁFRAM SKÁK!

Spurningin sem ég gat ekki svarað! (1 álit)

í Skák og bridds fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Vinnufélagi minn veit að ég hef gaman af því að tefla. Hann sagðist hafa séð aðrar íþróttir nefna upp iðkendafjölda sinn en hann hafði ekki séð neitt yfir skákina! Því fékk ég þessa spurningu: hvað eru margir iðkendur í skákinni í dag? Þar sem ég veit ekki svarið langar mig til að henda þessari spurningu út á netið og vona að einhver ykkar viti svarið við þessu.

[b]Byrjanir![/b] (2 álit)

í Skák og bridds fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Ég var að spá í það hvort ekki væri sniðugt að setja inn í spes kassa byrjanir í skákinni sem menn eins og ég geti kíkt á, mig langar nefnilega til að læra fleiri byrjanir en þær sem ég kann!

Hraðskák! (4 álit)

í Skák og bridds fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Hvað telst hraðskák vera löng í mínútum talið?

Langar að vita! (3 álit)

í Skák og bridds fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég sé að hrókurinn er ekki með í keppninni að þessu sinni. Veit einhver af hverju það er?

[b]Grand Master Chess[/b] (0 álit)

í Tölvuleikir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég var að ná í forrit sem heitir Grand Master Chess en ég get ekki telft á netinu því mig vantar leikjaþjón. Hvar næ ég í leikjaþjón fyrir þennan leik. Gott væri að fá slóðina til að geta sótt hann og sett upp.

Golf (2 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Mig langar að vita hvaða kennarar muni kenna í básum í vetur. Veit það einhver? Það væri gott að vita það því ég er utan af landi og veit ekki hverjir muni kenna þarna.

Sælir unnendur smásögunnar! (1 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Mig langar til að vita hvernig ég fer að því að setja inn smásögur. Ég er með eina eða tvær sem mig langar til að setja inn og fá umsagnir á. Getur einhver svarað þessu?

HÆ! (0 álit)

í Farsímar fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég var að fá mér Sony Ericsson GSM síma T230 en ég skil ekki dönsku, er einhver þarna úti sem getur kennt mér á þetta apparat eða þýtt þetta?

Telft á netinu! (7 álit)

í Skák og bridds fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hvernig kemst ég í samband við skákáhugamenn á netinu og hvaða forrit þarf ég til að geta telft við þessa heiðursmenn?

Mig vantar að vita! (1 álit)

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hverig er hægt að reikna þá hreyfingu sem maður hreyfir sig í á viðkomandi degi? Þá á ég við formúluna!

Vantar bók! (2 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Á einhver bókina: má ég gefa yður ráð eftir: Jack Nicklaus? Mig vantar þessa bók og ef einhver vill láta hana af hendi má svara mér á stefanbh@visir.is

Hvernig reikna ég út! (1 álit)

í Heilsa fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Mig langar til að vita hvernig maður reiknar út það sem maður brennir miðað við þyngd og þá hreyfingu sem maður stundar? Er einhver reikniformúla hvað það varðar?

James Bond 007 (1 álit)

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Ég var að lesa á síðu tæknivals að það væru sendir spæjarar í tölvurnar okkar. Því langar mig til að vita hvort það sé ekki til forrit með góðum upplýsingum um hverig eigi að slátra þessum spæjurum, njósnurum eða á maður að kalla það James Bond 007 tölvunnar?

Smá forvitni (3 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Veit einhver hvernig Ping kylfurnar plumma sig hjá þeim sem hafa keypt Ping? Líkar mönnum við þær? Sama spurning um Taylor Made og Titlest!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok