Nýlega náði ég í 6.2 af MSN og setti það upp í tölvunni minni. En svo fóru undarlegir hlutir að gerast. Ef ég slökkti á tölvunni og ræsti hana kannski daginn eftir þá var MSN 6.2 horfið en lítill grár kassi kom þar sem mér var gefið möguleikar á að installa MSN 6.2, annað hvort yes eða no. Síðan tekur X tími við að koma þessu í gegn og stundum þarf ég að tvíræsa tölvuna, samkvæmt beiðninni á meðan install stendur. Stundum heppnast það að ég komist inn á MSN og stundum ekki. Veit einhver hvað er í gangi hjá mér?