Alveg rólegur! Að segja að þær séu þar bestu í heimi er náttúrulega bara fásinna, alveg eru þær ágætar þó misjafnar einsog þær eru margar. Ég get bent á Singapore Airlines sem toppflugfélag, þar var sko besta þjónusta og pláss sem ég hef fengið, maður fékk matseðil og alles. Og verð ég líka að gefa KLM hærri einkunn. Þó flýg ég alltaf með lággjaldaflugfélögum og kýs Icelandexpress framyfir flugleiðir, þar sem án þeirra þyrfti ég enn að borga 45000 kall til London!!! Og er ég fyllilega sáttur...