Síðan þú fórst af yfirborði jarðar, þá hef ég ekkert vitað hvað ég hef átt að gera. Ég hef reynt að forðast það að hugsa um þig. Drekk mikið, tek inn töflur, allt saman, bara til þess að gleyma. Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Ég komst ekki að því að ég elskaði þig, fyrr en eftir að þú varst farinn. Ég reyni að gleyma, en það tekst ekki, ég sé mynd af þér, og ég fer að tala við þig. Því ég veit að þú heyrir í mér. Þótt þú getir ekki svarað. Ég veit að þér líður vel núna, en ég get ekki...