Ég elska þig.
Ég gerði mér ekki grein fyrir því
fyrr en það var of seint.
Kannski að það sama eigi við þig.
Ég veit þú elskar mig,
þú komst til mín í draumi,
og sagðir mér það.

Ég elska þig svo heitt,
ég hef elskað þig alla tíð.
Alveg frá því ég hitti þig fyrst,
jafnvel fyrr.

Ég mun ávallt elska þig.
þótt sá tími komi,
að ég hugsa ekki um þig alla daga.
Þá vil ég að þú vitir að ég elska þig.

Ég elska þig,
og mun ávallt elska þig.
Því samdi ég þetta ljóð til þín.
Svo þú vitir að ég elska þig
Ástin mín….

spotta/3.des.2000