Ég var nú bara að taka dæmi um stöðvar sem vantar á listann. persónulega fynnst mér Gufan best. Það er eina stöðin sem þú átt ekki von á að heyra sama lagið leikið oftar en einu sinni á sólarhring. Ég hlusta samt ekkert alltaf á hana þar sem það er ekki alltaf eitthvað sem ég hef gaman af. En metnaðurinn er samt þeirra.
Persónulega finnst mér Ronaldo vera að koma illa fram við liðið sem borgaði honum laun á meðan hann var meiddur. Auk þess þarf Real ekki að borga honum laun ef hann meiðist í sex mánuði eða meira. Það þarf nú ekki mikinn viðskiptafræðing til þess að sjá að það er verra en hjá Inter Milan. En á móti kemur að hjá Real Madrid er hefð fyrir titlum óháð því hversu margar stórstjörnur eru þannig að það er alveg ljóst að þeir koma til með að vera sterkir í ár. Mér finnst þó vörnin vera veikasti...
Það verður bara að sætta sig við þetta þangað til CM4 kemur. Reyndar er möguleiki að ná í update því að oft er búið að breyta tölum þar hjá þessum gaurum eins og Aghahowa, Cisse o.s.frv.
Wilfried Bouma, hann er að vísu skelfilega dýr en á oft stoðsendingar. Auk þess getur hann leikið alla vinstri hliðina á vellinum þannig að þú gætir notað hann í def.mid left.
AC Milan var að fá Nesta svo að ekki segja mér að þeir verði ekki sterkir í ár. En hvað um það Juventus vinnur og verða hin liðin að bítast um 2. sætið
AC Milan var að fá Nesta svo að ekki segja mér að þeir verði ekki sterkir í ár. En hvað um það Juventus vinnur og verða hin liðin að bítast um 2. sætið
Ég hefði nú eiginlega valið hana líka, þetta er bara besta leikkerfi sem ég hef nokkurn tíma prufað. Samt hef ég reynt að betrumbæta það en án nokkurs sjáanlegs árangurs
Mín spá er 1. Juventus 2. AC Milan 3. Roma 4. Inter Milan 5. Bologna 6. Atalanta 7. Lazio 8. Brescia 9. Parma 10.Torino 11.Empoli 12.Piacenza 13.Udinese 14.Perugia 15.Reggina 16.Chievo 17.Como 18.Modena En þetta er bara það sem mér finnst.
Ég var rétt í þessu að skrá mig á yahoo.com svo að nú er bara að auglýsa nýja addressið hjá félögunum og sjá hvort það virki vel. 4mb er samt frekar rausnarlegt miðað við að Hotmail er með 2mb geymslurými. Frípóstur visir.is var með 3m
Jú, Umberto Agnelli sem fer fyrir Agnelli fjölskylduni sem á stóran hlut í Juve og FIAT sagðist ekki ætla að láta meiri pening í Juventus meðan það væri enginn hagnaður af því. Nú er einhver Lýbíu forsteti eða eitthvað álíka búinn að kaupa hlut í Juventus og sá gaur er mjög ríkur. Þannig að bakhjarlar Juve eru ekki af verri endanum.
Þetta kom fyrir alla. Þú gast þó skráð þig inn aftur, það er betra en ég. Það kemur bara alltaf „Vitlaust notendanafn eða lykilorð.“ og ég sem hef skráð mig inn nánast á hverjum degi síðustu 2-3 árin. Allt í einu á ég bara að hafa gleymt lykilorðinu eða notendanafninu sem ég btw nota líka á Hugi.is án erfiðleika. Og nú þarf ég að skrá mig á Hotmail sem er ekkert nema pirrandi því nú fæ ég ekkert nema helv… rusl póst sem ég kæri mig ekkert um.
Juve var einu sinni svona lið sem keypti mikið og aðallega dýra leikmenn, þ.e. launaháa. En um það leyti sem Lippi tók við þeim voru hans skilaboð að nú þyrfti að snúa við spilinu og þess vegna hefur Juve oft selt sínar stærstu stjörnur og ekki oft keypt á móti. Í dag er Juventus eitt best rekna knattspyrnulið í heiminum og jafnframt með þeim ríkari.
Á sigames.com var talað um að þegar nýja logoið yrði kynnt færu fyrstu alvöru fréttir að berast af leiknum, utan þess að skjáskot eru ekki væntanleg strax. Það þýðir að demóið kemur sennilega ekki á næstunni. En nú er bara að spila CM 01/02 áður en honum verður endanlega lagt á heiðurs hilluna, þar sem fyrir eru CM 00/01, CM 99/00 CM3 og CM 97/98.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..