Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

smeppi
smeppi Notandi frá fornöld 39 ára karlmaður
1.038 stig Hefur áhuga á: Klingonum
indoubitably

Re: björk

í Tilveran fyrir 17 árum
Já! That's it! Myndi borga bara fyrir að finna lyktina af því..

Re: NIÐUR MEÐ ALLT: Grein um Anarkisma

í Deiglan fyrir 17 árum
Jújú, anarkisminn verður að sjálfsögðu alltaf að vera að reyna að koma sér að, þannig virkar kenningin. Held það hafi verið Hegel sem var á svipuðum nótum og Marx, en hann talaði um tesur svokallaðar. Þá var tesa sú stefna sem var ráðandi í, já í hverju sem er í rauninni. Mótpóll hennar var svo andtesa og þær rugguðust á móti hvorri annarri og á milli þeirra varð svo sýntesa, sem væri í raun hægt að túlka sem útkomu eða eitthvað slíkt. Samasem merkið sem kemur eftir að við blöndum saman...

Re: NIÐUR MEÐ ALLT: Grein um Anarkisma

í Deiglan fyrir 17 árum
Virkilega falleg grein. Vel skrifuð og skemmtileg. En ég verð fyrir mínar sakir að vera ósammála því að hægt sé að berjast fyrir anarkisma. Hann er útópían, og mun bara gerast. Ekki í þessari kreppu, ekki í þeirri næstu og örugglega ekki í þeirri á eftir henni. En einhverntíman (vonandi ekki eftir kjarnorkustríð) þá mun þetta bara gerast. Ég byggi þetta á þráttarkenningu Marxs. Samkvæmt henni er í raun hægt að túlka kommúnisma, anarkisma og útópíu sem sama hlutinn. Og það bara gerist á...

Re: NIÐUR MEÐ ALLT: Grein um Anarkisma

í Deiglan fyrir 17 árum
Hann er sjálfstæðismaður, sérðu það ekki? Þeir eru bara svona, er örugglega hægt að gera þetta að syndromi og skrifa ritgerðir um þessa manngerð.

Re: björk

í Tilveran fyrir 17 árum
Vinur minn keypti sér einhvern tíman einhverja breska blöndu frá þeim. Það var alveg gæða stöff. En ég man alls ekkert hvað það heitir.. Ég myndi nú bara hringja í þá og spurja þá útí opnunartímann. Þeir líka vita alveg hvaða tóbak er málið. Þeir eru líka með alveg miklu betri blöndur heldur en þetta rusl sem er selt á bensínstöðvum.

Re: hundar

í Tilveran fyrir 17 árum
Oh chihuahua hundar..

Re: Vantar smá hjálp.

í Windows fyrir 17 árum
Hvernig diskar eru þetta? Ertu með þá “í láni” ef þú fattar hvað ég á við? ;) Það er einhver driver að malfúnkera (ATAPI.SYS), líklega af diskunum. Ef þetta eru genuine diskar (keyptir útí búð), þá ættirðu bara að fara með þá þangað sem þú fékkst þá og heimta nýja, þessir eru greinilega bara gallaðir. Kannski ekki greinilega, en þá færðu alveg nýja sem þú getur prófað. Ef þeir eru ekki genuine (í láni frá internetinu), þá ættirðu að prófa að fá aðra tegund lánaða, ég er þó ekki viss hvort...

Re: Drive Path vesen..

í Windows fyrir 17 árum
Þú getur náttúrulega bara fengið flakkarann á réttan staf með því að breyta cd-rominu í eitthvað temporary, eins og X eða eitthvað. Breytt síðan flakkaranum og svo cd-romi aftur í whatever það var áður en þetta breyttist. Varðandi Deamon Tools, þá langar mér að spyrja hvort þú sért búinn að prófa að re-installa? Þetta er tiltölulega smátt forrit svo það er ekki mikið vesen. Annars verð ég að segja að þetta bókstafamaze á drifum er algjört flopp.

Re: Snillingur

í Tilveran fyrir 17 árum
Jú það var einhver á fótbolta leik með skilti þér til heiðurs. Ert það ekki þú sem ert einnig þekktur sem Hollendingurinn fljúgandi ?

Re: Lögin meika ekki sens

í Tilveran fyrir 17 árum
Er hann ekki bara að segja að það séu alltof strangar refsingar gegn þessu? Ég horfði nú bara á helminginn eða svo, en þetta virðist afskaplega bundið við einhver ríki Bandaríkjanna, heyrði hann nefna Californiu og Oklahoma. Þar er maður að missa bílpróf við það eitt að vera með marijuana á sér, óhátt því hvort maður sé á bíl. Einnig missir maður möguleika á skólastyrkjum frá ríkinu, eitthvað sem maður myndi til dæmis ekki missa ef maður væri dæmdur fyrir nauðgun og jafnvel morð. Kannski...

Re: umræða.

í Húmor fyrir 17 árum
Nei nei, ég tók forritin bara svona sem dæmi. Þetta er að sjálfsögðu líka til í félagslegri merkingu líkt og í íslensku. Dæmi Stuart from 5th floor is bugging me.

Re: D3ERR_NOTAVAILABLE

í Windows fyrir 17 árum
Já ég veit ekki hvað gæti verið að. Ég gæti sagt þér að upgradea DirectX en þú ert með 9.0c sem er nýjasta. Ég sting þó uppá því að þú fiktir í game options, í graphic/sound dálknum (ég er ekki alveg viss hvernig þetta er uppsett þarna). Fiktaðu bara þar og hugsanlega stumblaru á eitthvað sem lagar þetta. Ef þú sérð eitthvað sem heitir Direct3D þá skaltu breyta því.

Re: umræða.

í Húmor fyrir 17 árum
Þetta er náttúrulega dregið af enska orðinu ‘bug’ sem í beinni þýðingu merkir padda. Oft notað fyrir villur í forritum, þú hefur kannski heyrt um að forrit séu bugged. Þá eru forrit að bögga mann, ef svo má að orði komast. Þetta með endaþarmsmökin hef ég einnig heyrt áður, en aldrei fylgja neinar heimildir. Líklega er þetta úr einhverri djók orðabók eða hreinlega færeysku.

Re: Top 5 netsíður

í Tilveran fyrir 17 árum
Ekki það að ég sé nú ekki sammála þér, þá langar mig samt að slá upp spurningunni; hvað er auglýsing? Er sú gjörð að tala illa um hlut auglýsing? Ef ég segði, “Mr. Prop er hræðilegt þvottaefni” væri ég þá að auglýsa Mr. Prop? Einhverjir segja að slæm umfjöllun sé betri en engin umfjöllun og hugsanlega er það satt í mörgum tilvikum. Þó grunar mig að fólk eigi þá frekar við um menningarlega umfjöllun, til að mynda þegar talað er um bíómyndir eða tónlistarfólk. Húsmæður sem slúðra í...

Re: Top 5 netsíður

í Tilveran fyrir 17 árum
Ég hafði nú bara ekki hugmynd um það. Ég biðst forláts. Annars var ætlunin nú ekki að auglýsa neitt.

Re: Top 5 netsíður

í Tilveran fyrir 17 árum
SurfTheChannel hugi.is pornhub.com mbl.is slashdot.org Að ógleymdu google, messenger.hotmail.com, facebook og fsn.is (á veturna).

Re: Rifrildi...

í Tilveran fyrir 17 árum
Ah já, auðvitað. Svona samblanda af Jón og Kristinn. Eða þannig. Sniðugt.

Re: Rifrildi...

í Tilveran fyrir 17 árum
I don't get it..

Re: Íslensk náttúra

í Tilveran fyrir 17 árum
Ég veit ekki til þess að það séu til nógu sterk orð til þess að lýsa íslenskri náttúru..

Re: Rifrildi...

í Tilveran fyrir 17 árum
Og hvar kemur þá Kristjón inní þetta allt saman ?

Re: lágmarkslaun

í Tilveran fyrir 17 árum
É'r nokkuð viss um að þú hafir rétt fyrir þér…!

Re: Færeyjingafrændur

í Tilveran fyrir 17 árum
Lesmálið þeirra er svipað íslensku (og náttúrulega dönsku og norsku og það allt) svo það er ekki mjög erfitt að átta sig á samhenginu. Líka virkilega fyndið mál. En framburðurinn er öllu snúnari. Sést vel ef maður hlustar til að mynda á Týr og les textann með.

Re: Drauma högg

í Tilveran fyrir 17 árum
Hver samdi þetta? Right, einhver gæji með penna..

Re: Drauma högg

í Tilveran fyrir 17 árum
Ekki horfðiru á IT Crowd þáttinn og trúir því að internetið sé í alvörunni lítill svartur kassi með rauðu blikkandi ljósi? Vegna þess að ég myndi þá bara setja skrifin þangað. Nei þú veist, það er verið að meina svona, sverðið drepur, en við erum hvort eð er bara menn, dauðlegar verur, það deyja allir og all we know þá gæti það hreinlega bara verið ein besta skemmtun. En þú “drepur” ekki bækur. Þær verða til í mörg hundruð ef ekki þúsundir ára.

Re: D3ERR_NOTAVAILABLE

í Windows fyrir 17 árum
Gastu lesið þetta, downloadað, installað, restartað, runnað sims og svarað mér á 2 mín? Ja hérna hér.. En þú veist, ekki málið.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok