Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

smeppi
smeppi Notandi frá fornöld 39 ára karlmaður
1.038 stig Hefur áhuga á: Klingonum
indoubitably

Re: Stelpur, stúlkur og personal message.

í Tilveran fyrir 17 árum
Gæti verið ógeðslega awesome?

Re: afhverju?

í Netið fyrir 17 árum
Þannig ef við erum nógu open-minded þá gætum við sagt hvað sem er hérna, því það gerist allt á netinu..

Re: sms á netinu ..

í Netið fyrir 17 árum
Þú sendir náttúrulega frá ja.is, sem er á Íslandi, þó þú farir á ja.is í útlöndum. Þannig í raun ertu að senda frá Íslandi til Íslands, þótt þú værir í Kína. Bottom line er að þú getur bara sent í íslensk númer á ja.is.

Re: Gúi, Champion of the Frozen Wastes

í Blizzard leikir fyrir 17 árum
Vá, mig langar nú bara aftur að fara að spila þegar ég sé þennan fallega priest. Væri samt eflaust fallegri ef hann væri undead :)

Re: Command prompt i linux

í Linux fyrir 17 árum
Sæll félagi. Forrit líkt og command prompt úr Windows kallast Terminal. Til eru nokkrar útgáfur af því, til að mynda x-term, gnome-terminal, konsole, terminator og margt fleira. Ubuntu notar gnome-terminal og skýrir hann einfaldlega Terminal í valmynd sinni. Þú getur líka komist í terminal (skel (shell) eða bash væri réttari málflutningur) með því að ýta á Alt+Ctrl+F1 (eða, F2, F3, F4). Svo kemstu tilbaka með Alt+Ctrl+F7 Annars er til stórsniðugt GUI forrit til þess að formata, resiza og...

Re: Trúleysingjar ...

í Tilveran fyrir 17 árum
“En ekki sérðu trúleysingja oft á vappi, þrýstandi á fólk til að gerast trúleysingi, er það?” Jú það er reyndar staðreyndin. Ekki kannski á vappi, en sérstaklega mikið hérna á huga og kannski internetinu almennt. Ég hef engra hagsmuna að vernda gagnvart þessu máli og get því séð hlutina frá hlutlausu sjónarmiði.Þú kannski sérð það ekki, hugsanlega búinn að gera upp hug þinn og búinn að tippa á þitt lið ef við getum svo að orði komist. Kannski hefur rétt fyrir þér og finnst þetta því bara...

Re: Trúleysingjar ...

í Tilveran fyrir 17 árum
Það væri náttúrulega algjör hræsni að segja að; “Þú og þínir líkar (þ.e. trúleysingjar) eruð einmitt að predika hvað kristin trú sé heimskuleg og að enginn ætti að fylgja henni”. Eða hvað? Það besta við trúleysi er að það hafa engin fjöldamorð verið framin í nafni þeirrar trúar, andstætt flestum öðrum trúarbrögðum. Fyrir utan það sé ég persónulega ekki mikið “gott” við það trúarbragð. “Þið” (hænsnalappir vegna hræsnis) eruð bara nákvæmlega eins og múslimarnir sem drepa kristna og gyðinga...

Re: Trúleysingjar ...

í Tilveran fyrir 17 árum
Trú er ekki endilega sjálfsblekking. Sjálfsblekking væri frekar að stara blint í aðra áttina og þvertaka fyrir að hin áttin gæti mögulega meikað sense (sem er þó stundum málið með trúað fólk (jafnt sem trúlausa), ég neita því ekki). Heldurðu líka virkilega að meirihluti trúaðra trúi því bókstaflega að Nói hafi verið á örkinni, eða að Jesús hafi labbað á vatni ?

Re: Lækningamáttur Kannabis

í Tilveran fyrir 17 árum
Nice! :P Samt ennþá sekt, sem er frekar há. En það er kannski skiljanlegt fyrst þetta er ólöglegt. Það er hins vegar allt annað málefni.

Re: Get ekki fært..

í Windows fyrir 17 árum
Hefurðu prófa að slökkva og kveikja á henni?

Re: Get ekki fært..

í Windows fyrir 17 árum
Væri kannski fínt að fá að vita hvað gerist þegar þú reynir að færa hluti á milli.. Færðu skilaboð eða vill mappan hreinlega ekki hreyfa sig? Búinn að prófa copy/paste?

Re: Trúleysingjar ...

í Tilveran fyrir 17 árum
Nú? Ég senti þeim bara bréf.. Þau hringdu í mig til að staðfesta og þá var það bara búið. Það eru reyndar kannski um svona 4 ár síðan. Annars dealaði ég bara við hagstofu, ekki þjóðkirkjuna beint.

Re: Lækningamáttur Kannabis

í Tilveran fyrir 17 árum
Heyrðu bara svona benda þér á að það veit engin fyrir víst hver orsök geðklofa eru í raun og veru. Það er talið núna að notkun ýmissa vímuefna (áfengi og sígarettur talin með) geti sett af stað geðklofa. Einnig geta áföll og annað sett þetta af stað. Point being, það veit það enginn og lögreglmaðurinn var eflaust að vitna í einhverjar áróðursskýrslur samdar af hálf-læknum sem meikuðu það ekki alveg. Líklegast er að að þetta sé arfgengur sjúkdómur (ss maður myndi fæðast með hann), en áhrifin...

Re: Trúleysingjar ...

í Tilveran fyrir 17 árum
Óneitanlega lítur þjóðkirkjan ansi vel út með 90% fylgjendur. En ef einstaklingar eru spurðir, þá koma í ljós aðrar niðurstöður. Til að mynda var Ísland efst á lista yfir trúlausustu lönd (af einhverjum 50 löndum). Listi þessi birtist í myndinni Religilous með Bill Maher. Ég veit þó ekki á hverju hann er byggður, en get ýmindað mér að hann endurspegli vel “ástandið” hér á landi.

Re: Trúleysingjar ...

í Tilveran fyrir 17 árum
Vertu nú hreinskilinn, það hjálpar þér að trúa á Guð, ekki satt? Það hlýtur að vera, fyrst þú trúir á hann. Það gerir þig ánægðan. Sem er bara ekkert nema gott. Fólk á bara að gera það sem gerir sig ánægt. Ég meina þú ert kannski pínu vitlaus, en þú ert þó ánægður! Það er það sem skiptir máli.

Re: Trúleysingjar ...

í Tilveran fyrir 17 árum
Er það í lagi að gera slæmt, vegna þess að einhver annar gerir það ? Mér finnst þetta asnalegt. Fólk má alveg trúa fyrir mér. Bókstafstrúarfólk er líka mikill minnihlutahópur. Flestir eru bara svona, jájá, guð gemmér nýjan ipod í jólagjöf eða whatever.

Re: HJÁLP VÍRUS???

í Windows fyrir 17 árum
Nú þá er þetta furðulegt, en mjög líklega eitthvað malware. Eitt svolítið sniðugt trick, er að sækja nýja útgáfu af Spybot Search & Destroy, og líka Ad-Aware ef þú ert í stuði. Updeita bæði en ekki scanna. Restarta tölvunni og boota upp í safe-mode, þar geturðu scannað. Líka með vírusvörn ef þú ert með svoleiðis. Þetta virkar oft betur því sum malware setja upp varnir þegar þær eru í gangi og því ekki hægt að henda þeim út. Í safe-mode er bara það nauðsynlegasta í gangi og því oftar hægt að...

Re: Enn ein PC vs. Mac greinin

í Windows fyrir 17 árum
Skilgreiningaróða fífl. Þú ert farinn að gera mig pirraðan með þessu endalausa tunnel visioni. Helduru að ég viti ekki hvernig file permissions virka? Ég hugsa að þú gerir það ekki, fyrst þú segir að það komi í veg fyrir vírusa (já, samkvæmt súper skilgreiningum). Linkar á einhverjar wikipedia síður eins og lúði úr 9unda bekk sem var að opna terminal í fyrsta skipti og heldur að hann sé hacker. Þú hlýtur að vera að grínast.. Ætlarðu kannski að segja mér næst að vírusar skrifi sig sjálfir og...

Re: siminn.is og frí sms

í Tilveran fyrir 17 árum
Það er rétt. Þetta er í beta prófun og kemur til með að vera ókeypis þangað til að þetta er tilbúið, sem á að vera í Október.. ? Man það ekki alveg.

Re: CrunchBang Linux

í Linux fyrir 17 árum
Yfirleitt er þó eitthvað default config, en ég veit þó ekkert um það hvernig OpenBox er. Þetta er voða svipað og Fluxbox og BlackBox. Nákvæmlega sama pæling sett út á ósköp svipaðan máta. Held ég. Hef ekki kafað mjög djúpt í þetta. Sé reyndar ekki alveg muninn ef ég á að vera hreinskilinn :P

Re: CrunchBang Linux

í Linux fyrir 17 árum
OpenBox. Kemur afskaplega vel fram á CrunchBang vefsíðunni. Það er configgað nokkurn vegin svona í default install (ekki alveg samt) og svo fylgir conky með, og fleira. Screenshot af OpenBox væri allavega ekki svona.

Re: Lækningamáttur Kannabis

í Tilveran fyrir 17 árum
Það læknar gláku hef ég heyrt (einhver augnsjúkdómur). En ég las líka einhversstaðar að það læknaði ekki endilega krabbamein (eða hvað það var) en héldi aftur vexti og þroska þess.

Re: Enn ein PC vs. Mac greinin

í Windows fyrir 17 árum
Alveg magnaðar og sumar hreint ágætis tilraunir til comebacks. Metnaðurinn er orðinn svo slakur að þú verður að brytja niður setningar mínar, sleppa allri uppbyggingu á einhverju sem gæti talist til skrifs og koma einungis með mótsvör. Annars sagði ég aldrei vegna þess að það er mjög ólíklegt. Ég sagði heldur aldrei, “Það er víst hægt að fá krabbamein hablahba”. Þú sagðir, það er ekki hægt að fá vírus á macca (krabbamein af því að liggja á grasi). Ég sagði það er víst hægt. Það er allt hægt,...

Re: Óska eftir snilling!!

í Windows fyrir 17 árum
UU já. Ekki mikið, en pínu. Útaf USB lyklinum. Við getum væntanlega ekki notað Nero til þess að skrifa á USB lykil og notum því unetbootin til þess. No worries, það er afskaplega einfalt forrit. Passaðu þig bara að skrifa á réttan disk (USB lykilinn semsagt). Þetta er í raun auðveldara heldur en að brenna disk. Síðan manstu bara að boota tölvunni upp af USB og Ubuntu ætti að þekkja öll drif og allt.

Re: Enn ein PC vs. Mac greinin

í Windows fyrir 17 árum
Ég næ þessu, en mér sýnist þú ekki vera að ná þessu aalveg. Sko, ééég er að tala um afleiðingarnar. Þú getur sagt manni að hann eigi aldrei eftir að fá krabbamein og sé því óhultur, en það er ekki þar með sagt að hann gæti hoppað úr flugvél og lifað það af, er það nokkuð ? Þú viðurkennir þetta sjálfur í skrifum þínum, en vilt ekki samþykkja það. Ég veit alveg að maccar eiga “aldrei” eftir að fá vírus, en það sama gildir um Windows. Það er því rökvilla að halda því fram að maccar séu öruggari...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok