Jájá. Ég skal reyna að útskýra betur hvað ég var að meina. Eins og margir vilja meina, þá gengur lífið í hringi. Árið er alls engin undantekning á því. Þar eru bara fjórar árstíðir, sumar og vetur, sem eru andstæður (tesa og andtesa í þessu tilviki) og haust og vor. Þegar sumar og vetur mætast myndast vor og verður að sýntesu. Sýntesan verður því að tesu og andtesa myndast; haustið. Útúr þeirri formúlu fáum við svo sumarið sem sýntesu sem verður ný tesa og veturinn andtesa. Og þannig koll af...