Já, ég hef lent í þessu líka. Vinur minn sagðist vera hrifinn af mér, ég var það ekki. Hlutirnir voru skrýtnir í smá tíma, en núna vitum við bæði hvað okkur finnst og erum mjög góðir vinir! :) En, talandi um að vera fastur í vinasvæðinu, það er svo erfitt að meta það hvenær og hvort maður eigi að segja eitthvað. En oftast veit maður það alveg hvort að e-r af hinu kyninu er að spá í manni. Þó reynt sé að fara leynt með það, fer það yfirleitt ekki á milli mála :) kv. slippu