Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: Tónlist Christinu Aguilera notuð til að pynta fanga í Guantanamo

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Málið er að ef það er eitthvað um kristna/hvíta menn þarna þá er ekki eins og Bandaríkjamenn myndu sleppa þeim vegna húðlitar/trúarbragða. Þú mátt mín vegna sjá fyrir þér saklausa múslima sem Bandaríkjamenn leika sér að því að fangelsa. En staðreyndin er sú að þetta eru aðgerðir gegn hryðjuverkasamtökum (sem by the way hata alveg örugglega líka Íslendinga) og það er því miður ekki hægt að koma í veg fyrir að einn og einn saklaus maður lendi í súpunni.

Re: Tónlist Christinu Aguilera notuð til að pynta fanga í Guantanamo

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
ég veit ekki hvort það myndi mikil áhrifa hafa á þig ef ég teldi upp alla þá stríðsglæpi sem bandaríkja menn hafa framið Þú mátt alveg gera það. En bara ef þú telur upp stríðsglæpi Evrópu í leiðinni.

Re: Tónlist Christinu Aguilera notuð til að pynta fanga í Guantanamo

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Hversu margir hvítir/kristnir menn eru í miðausturlöndum að plana hryðjuverk á vestræn lönd ? Think before you speak!

Re: Tónlist Christinu Aguilera notuð til að pynta fanga í Guantanamo

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Stórveldi heimsins hafa alla tíð misnotað stöðu sína. Öll ríki heims hugsa nr 1, 2 og 3 fyrst um eigið ríki og þegna. Því er ekkert óeðlilegt að Bandaríkjamenn fari til Afghanistan og taki stríðsfanga eftir að það var framið hryðjuverkaárás í landinu þeirra. Í raun er ég hissa á því að þeir hafi verið ekki harðari en raunin varð. Margir sérfræðingar hafa haldið því fram að Bandaríkin myndu beita kjarnorkuvopnum ef það yrði einhvertíman ráðist á meginlandið, en raunin varð önnur. Þeir eru...

Re: Tónlist Christinu Aguilera notuð til að pynta fanga í Guantanamo

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég sagði það ekki. En af hverju gagnrýnum við frekar Bandaríkin en aðra ? Af því kanahatur er vinsælt í dag.

Re: Nú er nóg komið!

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég legg til að þessum korki verði eytt.

Re: Tónlist Christinu Aguilera notuð til að pynta fanga í Guantanamo

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þessi sáttmáli er eiginlega frekar eins og Bíblían, ágæt leiðbeining en í vissum aðstæðum er hreinlega ekki hægt að fara beint eftir því. Sama gildir um margar aðrar þjóðir. Ég veit ekki betur en að frændur okkar Danir hafi líka pynt stríðsfanga.

Re: Tónlist Christinu Aguilera notuð til að pynta fanga í Guantanamo

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Að skipta þessu eftir trúarbrögðum er nú ekki gáfulegt frá þér. Það er ekki verið að handtaka neinn fyrir það að vera múslimi. Það var handtekið fólk á átakasvæðum t.d. í Afghanistan þar sem Bandaríkjamenn hafa verið að berjast gegn Al-Qaeeda. Því miður þá er það þannig að einn og einn eru handteknir sem að voru ekki að gera neitt mikið meira en að starfa t.d. sem bílstjórar. En þegar þú ert með hóp af mönnum þar sem margir tengjast hættulegum hryðjuverkasamtökum þá hægir það á ferlinu að...

Re: Tónlist Christinu Aguilera notuð til að pynta fanga í Guantanamo

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þetta er það sem skeður í stríðum og ég skil ekki af hverju Bandaríkin ættu að vera einhver undantekning. Það myndi takmarka baráttuna gegn hryðjuverkamönnum ef það þyrfti að halda réttarhöld yfir hverjum einasta stríðsfanga.

Re: Tónlist Christinu Aguilera notuð til að pynta fanga í Guantanamo

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Það er nú frekar eðlilegt að það sé tekið stríðsfanga án dóms og laga.

Re: Tónlist Christinu Aguilera notuð til að pynta fanga í Guantanamo

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég held nú að þeir geri þetta ekki vegna þess að þeir telji lögin hennar vera svona slæm. Heldur hvernig Christina syngur lögin. Hún öskrar í mörgum lögum og það ætti að vekja mann frekar en hið týpíska popp.

Re: Þessi könnun

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Er það ekki bara það sama og þessir jafnaðarmenn sem við höfum í dag á Íslandi ?

Re: Lecter

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Margir lenda í því að verða heilaþvegnir rétt eftir að það skeður eitthvað í lífi þeirra. T.d. skilnaður, forræðismál, fíkniefnavandamál… og fleira. Trúarsöfnuðir nota margir tækifærið til þess að heilaþvo fólk sem að áttar sig ekki á því vegna tómleika í eigin lífi.

Re: Bestu eurovison lög allra tíma

í Söngvakeppnir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
T.d. Toxic, I´m a Slave 4 U og Outrageous. Ég skal samt vera sanngjarn og nefna nokkur ófrumleg. T.d. Overprotected, Baby One More Time og Stronger eru mjög ófrumleg lög. En þau eiga samt öll það sameiginlegt að vera skemmtileg lög :=)

Re: Bestu eurovison lög allra tíma

í Söngvakeppnir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég er ósammála því.

Re: Bestu eurovison lög allra tíma

í Söngvakeppnir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Sum, sum ekki.

Re: Guananamo

í Deiglan fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Til þess að sleppa við að fara eftir Bandarískum lögum ?

Re: Bestu eurovison lög allra tíma

í Söngvakeppnir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Já Britney lög eru frumlegri en þetta lag frá Noregi. Bon Jovi lag með grófara útliti.

Re: Bestu eurovison lög allra tíma

í Söngvakeppnir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Wig Wam eru svo ófrumlegir að það mætti halda að þetta sé cover band.

Re: Gullkorn frá Ingibjörgu og Össuri

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þar sem þú gast ekki fundið neitt á þessari öldu þá efast ég um að þetta sé stefna Samfylkingarinnar.

Re: Er Lecter búinn að tapa glórunni ?

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Með því að stofna korka um þennan gaur er bara verið að hella bensín á eldinn. Þið eruð að gera nákvæmlega það sem hann vill að þið geriðm gefið honum meiri athyggli á Huga.

Re: Léleg vinnubrögð Fréttablaðsins

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Endilega að kvarta. Ég held að blaðberarnir notfæri sér það að þetta sé frítt blað, minni líkur á að fólk kvarti.

Re: Guananamo

í Deiglan fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Stundum þarf að gera öfgaaðgerðir í stríðum. En nú 4 árum eftir 9/11 árásina eru þeir eitthvað byrjaðir að róast, þar sem þeir eru byrjaðir að tala um að loka fangelsinu. Eru líklega ekki að græða neitt mikið frá með deginum í dag miða við það sem þeir fengu á þessum nokkrum árum.

Re: Michael Jackson

í Fræga fólkið fyrir 20 árum, 9 mánuðum
hálf ? heh :)

Re: Ný pæling

í Deiglan fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Hmm já það er nú spurning. Líka spurning hvort maður þurfi að vera eitthvað líkamlega sterkur í öllum þessum stöðum sem að eru t.d. í byggingarvinnu. Þar sem unglingsstrákar fá oft sumarvinnu á svona stöðum. Og líka spurning hvort það ætti ekki bara að láta konur (þar sem þær eru veikara kynið) halda áfram að sjá um hjúkrun og fleira sem karlmenn eru í auknu mæli að sækja. Til þess að jafna út að konur séu ekki að sækjast í þessi störf.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok