Nei en þeir eru með menn þar eins og í flestum stórum vestrænum löndum. Frakkland gæti alveg orðið fyrir hryðjuverkaárásum í framtíðinni. Gott mál að þeir byrjuðu að auka öryggi landsins eftir London árásirnar.
Alls ekki. Bandaríkjamenn hafa ekkert verið í áróðri gegn múslimum neitt meira en önnur lönd. Þeir hafa alltaf tekið fram að það sé verið að tala um öfgamenn. En það er alveg vitað að ýmis lönd í miðausturlöndum styðja hryðjuverk eða lýta fram hjá þeim. Þannig hafa þessi samtök svigrúm til þess að vaxa þar.
Nei nei. Ég hef hlustað á ýmsa tónlist og tel mig vera búinn að þróa minn smekk. Er ekkert að breytast á næstunni. Held bara áfram að fíla það í botn sem ég fíla :)
Eruð líka kannski að misskilja hverju ég er að nöldra yfir. Mín vegna mega franskar myndir vera í boði. En það er ósættanlegt að það sé blekkt mann svona með enskum titli. Ef titilinn væri franskur þá myndi enginn ruglast, þeir sem að virkilega hefðu áhuga á frönskum myndum myndu velja hana.
Auðvitað eru margar slæmar hryllingsmyndir frá Bna en ég tel samt að bestu myndirnar þeirra séu einfaldlega þær bestu. Ágætar sumar frá Japan en flestar eru frá Bna.
Við erum að tala um frægustu söngkonu nútímans. Þessi frétt er líka búin að fá fleiri svör á rúmum klukkutíma en flestar greinar á þessu áhugarmáli gera allan líftíma sinn.
Hún hefur samið tæpan helming þeirra. Hvernig væri að afla sér upplýsinga í stað þess að fullyrða? Og með leikkkonuna. Crossroads var auðvitað ekkert góð mynd en það var aðallega út af handritinu. Hún hefur verið jafn lengi leikkona og söngkona, var í sjónvarpsþætti og á Broadway.
Kannski frekar gróft að segja að þeir séu ekki múslimar. Það þekkist í öllum trúarbrögðum að beygja eða brjóta reglunar. Þeir byggja þetta á heilögu stríði sem er nefnt í kóraninum. En þeir beygja rosalega þetta hugtak og eru auðvitað ekki að fara eftir upprunalega hugtakinu.
Þeir eru alveg jafn mikið að refsa Írökum og Bandaríkjamönnum. Þeir ráðast oft á saklausa Íraka þar sem engir hermenn eru nálægt. Málið er að um leið og einhver deyr í landinu þá koma heimskir Evrópubúar og kenna Bandaríkjamönnum um það. Þó Al-Qaeda hafi verið þar að verki. Þetta eru þau viðbrögð sem þeir sækjast eftir. Svo fer þetta eftir trúarbrögðum. Þeir voru aðallega að ráðast gegn Sjíta múslimum sem er meirihluti í Írak, af því að “aumingja” Súnní múslimarnir eru búnir að missa völdin.
Já en samt sem áður hefur þú engar heimildir fyrir því að hann hafi þrýst á harðan dóm í þessu eða svipuðum málum. Að þú skulir dæma svona án heimilda lýsir þér vel. Vonandi þroskastu upp úr þessu.
Nú? Hún er kona, leikkona, systir, söngkona, dóttir, dansari, eiginkona, frænka, textahöfundur, framleiðandi og góður stuðningsmaður góðgerðamála. Margt margt fleira líka. En jæja. Can't win them all.
Vil bæta við… Held að það sé mikið algengara almennt í Bandaríkjunum að karlmenn faðmist en á Íslandi. Þó að Texas sé kannski undantekning. Íslenskir karlmenn eru með mikla hommafælni og þjóðin almennt er með lokuðustu þjóðum sem hægt er að finna. Þetta er það fyrsta sem útlendingar taka eftir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..