Kvöldið. Ég bý í raðhúsi eða svona lengju. Og ég er með trommusett í herberginu mínu. Herbergið mitt segjum bara að húsið mitt sé nr. 2 í lengjunni. Konan á númer eitt klikkaðist og er að hóta öllu illu. Ég færði mig yfir í annað herbergi og fór með trommurnar með, þá er ég fluttur alveg við vegginn hjá fólkinu nr. 3. Og þar er ég búinn að setta eggjabakka uppá alla veggi. Svo er ég búinn að vera tromma soldið núna uppá síðkastið og nágranninn á númer 3 gerir ekkert. En konan á númer eitt myndi gera eitthvað en ég reyni að spila þegar hún er ekki heima.

En núna var hún heima og ég var að tromma í fastari kantinum og hún kom klikkuð yfir og sagði mér að hætta þessum helvítis trommuslætti. Og ég hætti bara og ekkert mál.

Sko, ég þekki strák konunnar á númer eitt og hann er að tala við mig á msn og segja að hún ætli að fá lögmann, kæra, taka trommurnar af mér og eitthvað þvílíkt vesen útaf þessu.

Ég og pabbi erum búnir að reyna að finna æfingahúsnæði og svonna.

En spurningin er, hvort það sé ólöglegt að spila á trommur svona, og/eða hvort þetta sé kjaftæði og ég megi þetta alveg og komiði með rök fyrir þessu.