Ókei, hætt þú að væla; ég er að byrja í 6. bekk, búinn að vera fullur í tvær vikur á Ródos og það er ætlast til að ég hlaupi þetta eftir það! Þú hefur ekki rétt á að hneykslast ennþá!
Þar sem þú talar um persónufrelsi þeirra sem eiga við málfræði- og stafsetningarörðugleika að stríða þá vil ég benda á að með því að banna vinsamlegar leiðréttingar ertu að skerða persónufrelsi þeirra sem betur eru máli farnir. Að vísu er þetta væntanlega einfaldasta leiðin til að hefta málfræðieinelti en þetta er í bullandi þversögn við sjálft sig. Að lokum vil ég, þar sem þú auglýstir eftir ábendingum, taka fram að „aðal málefni“ á strangt til tekið að vera í einu orði; aðalmálefni. :)
Þú verður að gera þér grein fyrir að MR-ingar geta vísað til hefðarinnar, þar sem skólinn var ekki kallaður annað en „Menntaskólinn“ með stórum staf fyrr en á síðari hluta tuttugustu aldar.
Þú ert bara að hugsa um þína hagsmuni þegar þú ert að biðja um meiri pening. Hvað veitir þér leyfi til að hugsa bara um eigin hagsmuni meðan við megum það ekki?
Jú. Óskiplagt félagslíf væri félagslíf sem er ekki á vegum skólans, skipulagt á einhverjum tíma þar sem allir hittast og skemmta sér. Þetta felur óneitanlega í sér að það sem þú kallar óskipulagt félagslíf sé, í raun, skipulagt.
Umm, jááá, ss. óskipulagt félagslíf er skipulagt, er það það sem þú ert að segja? Annars þá fer það sem þú ert, að ég held, að tala um frekar eftir vinahópum en skóla.
Í gangaslagnum fyrir tveimur árum slasaðist einhver frekar illa, í kjölfarið var þeirri reglu komið á að aðeins valdir einstaklingar í 5. bekk fengju að verja bjölluna, sem sökkar frekar illilega því í fyrra var, að mig minnir, hringt inn eftir hálfa mínútu.
Nei, úff, þeir sem eru í 5. bekk núna eru líklega síðasta tebókynslóðin, auk þess að vera síðasta reglu-þrettán-og-hálftkynslóðin og síðasta gangaslagakynslóðin… Heimur vernsandi fer. Og já, vá, síðasti 80's árgangurinn líka!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..