Haha, já, ég hef svo sannarlega áhuga en ég þarf að gera upp á milli hans og Rickenbacker gítars, og þar sem ég á ágætan magnara fyrir held ég að gítarinn vegi þyngra, því miður :/
Merkjasnobb getur nú víst verið sniðugt. Ef manni er alvara með tónlistinni og nennir ekki að prófa alla ódýra gítarræfla á landinu þá er bara nokkuð næs að kaupa sér Gibson. Og satt sem þú segir með SG-inn og lampamagnarann! ;)
Hef ekkert nema gott að segja um Fender Hot Rod deluxe. Ótrúlega djúsí clean sound miðað við hvað hann er ódýr, og 40 wöttin eru alveg feykinóg til að yfirgnæfa flest sem þú vilt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..