Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Blinda Stelpan

í Sápur fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já og svo halda allir núna að Bree sé að verða geðveik eða eitthvað þar sem allir aðrir sjá ekki það sem hún sér. Og núna ætlar Zeak að fara með Anne á ballið! Ég varð ekkert smá reið þegar hann tilkinnti Bree það að hún yrði bara að finna sér annann herra!

Re: Loka baráttan í töfraheiminum

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hvernig fáránlegur? Ég verð alltaf svo spennt þegar ég sé auglýsinguna fyrir myndirnar.

Re: Ekkert smá sár!

í Sápur fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já ég veit það. Ég hef oft gaman af þessu drama líka og það verður oft spennandi þegar eitthvað er að gerast. En ég er alltaf reið þegar höfundarnir láta karakterana fremja morð eða eitthvað þannig bara vegna þess að þeir karagterar hafa verið í góðum málum í einhvern tíma.

Re: Ekkert smá sár!

í Sápur fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já og það var ekkert smá sorglegt!

Re: Kreacher....

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Vá hvað hann er folottur hjá þér! Þú ert greinilega góð/ur í að teikna! Þú nærð líka fram karakternum ;)

Re: Þegar ég var lítil

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Æi :'( það hefur verið svekkjandi að komast að því að fólk getur ekki gengið á vatni (þá er Jésús að sjálfsögðu ekki talinn með).

Re: James-Fjölskyldan

í The Sims fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Mér finnst nú svolítið ljótt af honum að flytja bara út úr húsinu með barnið á meðan konan svaf! Sérstaklega þar sem hún hafði greynilega hugsað ágætlega um barnið (þar sem hún var alltaf heima hjá því). En svona eru bara sumir simsarar ;) geta bara ekki verið með sama makanum of lengi! Þekki þetta :p

Re: Stefani

í The Sims fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þetta er bara hörku kvendi! Ömulegur þessi barnsfaðir hennar! En kannski hún og Jimmi nái saman?

Re: The Hikaro family;0 Chapter 1

í The Sims fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Skemmtileg saga um þessa fjölskyldu ég vona að hún dafni vel :)

Re: Sky?

í Sápur fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hún hlýtur að vera ennþá ólétt því núna er farið að sjá á henni ;)

Re: Ráðuneytið ;*

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Vá hvað ég er glöð að þeir fækkuðu ekki krökkunum sem fóru þessa ferð! Því að myndirnar hafa oft breytt þessu aðeins, eins og í fyrstu myndinni þá átti Nevel að vera með í skógjinum en ekki Ron. Svo ég er glöð að þeir hafa ákveðið að hafa þau öll 6 í þessari mynd.

Re: Box set, allar sjö bækurnar.

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þetta er nokkuð töff! En því miður er eins með þetta og allt annað (sem kemur svona í restina) maður á venjulega allt áður en þetta kemur. Svo ef maður fær sér svona þá á maður allt tvöfalt :) En þar sem ég hefði ekki getað beðið eftir að fá bækurnar á sínum tíma er ég alveg sátt við að eiga þetta ekki, en samt mjög flott eins og þú segir!

Re: So wrong!

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Mér finnst þær ekki viðeigandi! En því miður þá eru alltaf einhverjir sem vilja endilega eiðileggja svona hluti fyrir manni með einhverju kínkí dóti!

Re: Luna Lovegood

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þessi stelpa er sæt og ég er mjög ánægð með hana! Hlakka til að sjá hana leika!

Re: Ron, Harry og Lupin

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ja, það er eflaust eins með þetta og flest annað í myndunum (sem er ekki alveg eins og í bókunum) leikhöfundurinn hefur tekið sína eigin ákvörðun um hvernig ætti að raða upp fólkinu ;)

Re: Maria Serifovic

í Söngvakeppnir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hún er nú kvennlegri á þessari mynd en hún var í keppninni :)

Re: Minn Harry Potter - Voða djúpt! ;)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Okey, það skýrir hvers vegna þú komst með þetta komment :)

Re: Minn Harry Potter - Voða djúpt! ;)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já svo er það náttúrulega alveg einn af möguleikunum þó svo að maður hafi ekki mikið pælt í þeim möguleika sjálfur :)

Re: Verðandi mamma sem veit ekki neitt :o.

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég vil bara byrja á því að óska þér og kærastanum til hamingju með bumbubúann og vonandi dafnið þið öll vel næstu mánuði! Sjálf hef ég aldrei verið ólétt svo ég get því miður ekki svarað þeim spurningum sem þú setur fram sem krefjast þess að svarandinn sé búinn að ganga í gegn um það sama og þú ert að ganga í gegnum :) En ég hef þó nokkur svör sem gætu komið að góðum notum. Þú spurðir með fæðingarorlofið. Það eru 3 mánuðir sem móðirinn fær, 3 mánuðir sem faðirinn fær og það eru 3 mánuðir sem...

Re: Strákar...

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Fyrirgefðu forvitni mína en hver er tenging þessarar spurningar við þetta áhugamál? Ég er ekki að reyna að særa þig bara að forvitnast, því að ég sé ekki alveg tenginguna :)

Re: Minn Harry Potter - Voða djúpt! ;)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Nú? Það kom aldrei neytt nýtt fram, nema náttúrulega ef þú ert ekki búinn að lesa fyrstu 6 bækurnar? En það stendur samt á þessari síðu að hér séu fyrstu 6 bækurnar til umræðu svo þá þarf ekkert að merkja þetta sem spoler :)

Re: Minn Harry Potter - Voða djúpt! ;)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já það er eitt sem er alveg víst og það er að annað hvort deyr Harry eða Voldermont það vitum við því að Dumbledore sagði Harry það áður en hann dó. Sjálf vona ég að Voldermont hrökkvi upp af og þá geti Harry sannað það fyrir öllum að hann er virkilega eins góður og haldið var þegar hann var 1 árs. En eins og þú sagðir getur vel verið að Harry deyji og Voldermont lifi og rústi smám saman heimi galdra. Þegar ég hef verið að ræða þetta (sem er ekki mjög oft því heima hjá mér les enginn...

Re: Minn Harry Potter - Voða djúpt! ;)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Vá hvað þetta var góð grein hjá þér! Það er satt hjá þér þetta með að þó svo að við séum öll að lesa sömu bækurnar þá gerum við þær alltaf af okkar bókum. Ég sé þetta svona fyrir mér en það þarf ekkert að vera að allir hinir sjá það þannig. En það sem þú sagðir með 6. bókina og dauða Dumbledore fékk mig líka til þess að líða svona hálf undalega. Ég varð svo svegt að ég bara gat ekkert sofið! Næstu daga á eftir var ég bara mjög sár og átti mjög erfitt með allt saman, það var eins og einhver...

Re: TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN - Ljósið 55 ára

í Sápur fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þetta er náttúrulega elsta sápuópera í heimi svo við tilheyrum þeim hópi sem finnst gaman að horfa á elstu sápuóperu í heimi. En já til hamingju með daginn allir saman!!!

Re: hamingjusöm

í Sápur fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já jí halaðu ekki um það! Ég var næstum farin að gráta bara við að sjá hann og akkúrat eins og þú sagðir þann rétta!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok