Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: En Malasía??

í Ferðalög fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Nei alls ekki! ég fer ekki fyrir en eftir nokkra mánuði ef ég get farið. Takk Sigyn

Re: Thailand eða Canari eyjar???

í Ferðalög fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Veistu Anya ég gæti ekki verið meira sammála þér. Ég þoli ekki þessa típísku ríku íslendinga sem fara á hverju ári á sama ferðamannastaðinn t.d. Canary. Ef fólk er að borga svona mikinn pening fyrir að fara til útlanda afhverju ekki að fara á einhvern merkilegri stað en Canary t.d. Afríku, Asíu eða Suður-Ameríku. Þar sem maður upplifir allt öðruvísi menningu og kynnist öðrum þjóðarháttum. Á Canary fær maður allt upp í hendurnar, það er enginn ögrun og það er heldur engin stórmerkileg saga á...

Re: Smá gagnrýni.

í Tíska & útlit fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ætli fólk haldi ekki bara ennþá að fólk sem klæðir sig svona séu mansonistar og ímyndin sem fólk hefur af Manson er djöfuleg. Ég er sammála þér að fólk dæmir strax fólk sem klæðir sig svona, ég þekki til dæmis hinn indælasta strák sem var með mér í grunnskóla og hann klæðir sig svona. Hann er samt alveg æðislegur.

Re: draumar: Rauðar táneglur og kettir

í Dulspeki fyrir 24 árum, 8 mánuðum
Ástæðan að ég spurði hvort það hefði verið fullt tungl var sú að það er oft sagt að heimarnir tengjist þá og við getum fengið sýn inní annan heim. En mig langar svoldið að vita hvort þú þekktir manninn á myndinni.

Re: draumar: Rauðar táneglur og kettir

í Dulspeki fyrir 24 árum, 8 mánuðum
Hæ hæ Vá! Þetta líkist í raun ekki draumi heldur einhverjum öðrum heimi. Og það er ótrúlegt hvað ég get svo innilega séð fyrir mér allt sem þú lýsir. Eins og þessi mynd af frambjóðandanum, var þetta mynd af einhverjum sem þú hefur séð? Vissuru að þig væri að dreyma? Stundum dreymir mig draum þar sem ég veit að mig er að dreyma en ég verð að gera eitthvað ákveðið t.d. safna upplýsingum um framtíð mína, áður en ég vakna. Ég held (kannski er ég svoldið klikkuð??) að hugurinn geti ferðast um í...

Re: Leitin endalausa...

í Rómantík fyrir 24 árum, 8 mánuðum
Þetta er rosalega góð grein og ég er sammála eiginlega öllu sem þú segir. En ef það er til guð þá finnst mér það mikil mistök hjá honum að hafa skapað okkur því við höfum eyðilaggt svo mikið á jörðinni og eigum örugglega eftir að vera valdur eyðileggingu hennar. Og pæling þín með lífsförunautinn er að mörgu leiti mjög rétt. Ég hugsa samt oft að þetta sé bara blekking, þessi ást, til þess að við finnum maka og fjölgum okkur. Æji maður veit samt aldrei…

Re: rotnaðu perri

í Fræga fólkið fyrir 24 árum, 8 mánuðum
Og þú sem kallar þig perri. Ég vona bara að einn daginn átt þú eftir að þroskast og vera betri manneskja!!!

Re: Aaliyah er dáin ;(

í Fræga fólkið fyrir 24 árum, 8 mánuðum
Ég skil ekki alveg fólk, eins og suma sem hafa verið að láta álit sitt í ljós hérna, sem finnst allt í lagi að hún hafi dáið afþví hellingur af öðru fólki deyr líka. Það er auðvita alltf sorglegt þegar einhver deyr og okkur sem finnst það vera sorglegt að hún dó erum ekkert að gera lítið úr öðrum sem deyja.

Re: draumar: Rauðar táneglur og kettir

í Dulspeki fyrir 24 árum, 8 mánuðum
Hæ hæ, ég las greinina þína og var bara að pæla hvort þú hafir verið fullur eða á einhverju þegar þú sofnaðir? Ég meina það alls ekki illa, mig langar bara að vita þessar staðreyndir áður en ég get reynt að skilja þennan draum/sýn. Hefur þú áður dreymt svipaða drauma eða séð álíka hluti? Hvað varstu að hugsa þegar þú varst að þylja? Varstu að reyna að róa þig niður eða hrekja kettina á brott? Hvaða dagsetning var þetta sem þig dreymdi drauminn? Var fullt tungl?

Re: The Sims

í Tilveran fyrir 24 árum, 8 mánuðum
Ég prófaði þennan leik en mér fannst ekkert gerast í honum. Þau voru alltaf bara að éta og sofa. Ég fékk þau ekki til að gera neitt! Gerði ég eitthvað vitlaust eða er þetta bara svona hrikalega rólegur leikur? Hvað er hægt að gera sérstakt? Hvað er simsville? Hvaða síður?

Re: Færðu nóg að ríða?

í Rómantík fyrir 24 árum, 8 mánuðum
AFHVERJU ERU ALLIR AÐ BÚA TIL EINHVERN LISTA TIL AÐ FARA EFTIR? ERU ALLIR BARA AÐ LEITA SÉR AÐ MAKA FYRIR NOTTINA Í NÓTT? EF MAÐUR ER AÐ LEITA EFTIR SAMBANDI ÞÁ Á MAÐUR BARA AÐ VERA MAÐUR SJÁLFUR EN EKKI AÐ MÓTA SJÁLFAN SIG EFTIR EINHVERJUM LISTA! EF VIÐ MYNDUM ÖLL FARA EFTIR ÞESSUM LISTUM OG MISSA OKKAR EINKENNI VÆRU ALLAR STELPURNAR MEÐ AFLITAÐ HÁR MEÐ HRINGLAGA EYRNALOKKA MIKIÐ MÁLAÐAR FÖTUM ÚR 17 GEÐVEIKT BRÚNAR MEÐ PÍKUNA RAKAÐA Í RÖND, OG ALLIR STRÁKARNIR MEÐ DÖKKT HÁR UPPÍ LOFTIÐ MEÐ...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok