Ég var nú búin að skrifa um þetta á áhugamálinu leikir en þar var þetta sett á einn af miljón korkunum sem eru þar, svo mér datt í hug að setja þetta hér með von um meiri viðbrögð.
Mér finnst Sims alveg frábær leikur og bíð spennt eftir Simsville.
En mér datt í hug að athuga hvort einhver ykkar hefur lent í því í leiknum að vera numin brott af geimverum.
Þetta hefur komið nokkrum sinnum fyrir hjá mér þegar fólk er að nota “kíkirinn” sérstakleg að kveldi til. Þau hverfa samt bara í nokkra klukkutíma (simstíma) og koma svo aftur að það virðist ósködduð frá þessari lífsreynslu. En einhverstaðar las ég nú að persónuleiki þeirra getur breyst við þetta, það hefur samt allaveganna ekki gerst hjá mér.
Vonandi hefur einhver áhuga á sims og vill ræða um leikinn :)

p.s. ég veit um fullt af góðum síðum til að downloda af ef einhver hefur áhuga.

Kveðja Alfons
-Song of carrot game-