Alltaf þegar er verið að sýna myndir af geimverum í sjónvarpi (t.d X-files), blöðum, netinu og á fleiri stöðum þá er alltaf sama formúlan fyrir útlitinu…..þið vitið hvað ég er að tala um, stór möndlulaga augu(svört), grár veiklulegur búkur og slána hendur sem eru ekki í samræmi við önnur hlutföll. Það liggur við að það sé búið að heilaþvo mann það mikið að mar er farinn að trúa því virkilega að svona eigi geimverur að líta út! jú ok ég ætla samt ekki að reyna að neita því að einhverjir þarna úti hafi komist í kynni við e-ð eða e-n sem leit svona út…

Hver var það samt sem ákvað það að allar geimverur væri svipaðar mannfólkinu? Þá er ég að meina, standandi á tveim fótum, hárlaus og rófulaus! Gætu geimverur ekki alveg eins verið eins og einhver önnur dýr , fiskar, kamelljón, eða fuglar??? Þær gætu líka verið mjög vanþróaðar, einfrumungar eða e-ð álíka??

Ok með fullri viðringu fyrir þeim sem telja sig hafa upplifað kynni við geimverur, þá er þetta er bara mín persónulega skoðun en ég verð bara að segja að ég trúi því virkilega að það sé líf á öðrum hnöttum!!

Ég bara trúi því ekki að nokkur mannvera hafi séð geimveru…..