Heimir, í hvaða ógöngum hefur þú lent við lögregluna?! Mér er spurn því það hlítur að vera einhver ógurleg ástæða fyrir þessu vantrausti þínu gangvart lögreglunni. Sjálfur treysti ég löggunni fullkomlega fyrir þessu tæki enda hef ég ekki neinar áhyggjur af því að lenda í löggunni þar sem ég er skikkalegur borgari. Endilega komdu með frásögn af eigin raun en ekki einhver “urban legend” þar sem einhver vinur vinar var barinn, meisaður, skotinn með riffli, hengdur til þerris og ég veit ekki hvað.