Fyrir þá sem fíla McDonalds

Þar sem ég er fyrverandi starfsmaður McDonalds þá er ég ekki lengur bundin þagnarskyldu og ég get blaðrað því sem ég sá eitt kvöld á McDonalds.

Ég var að vinna í bakherberginu (þar sem allt er þvegið(þar er risastór vaskur og þvottavél)
og þegar ég þurfti að þvo, ég veit ekki alveg hvað þetta heitir en þetta er svona rör eða renningur sem heldur úrganginum frá steikingavélinni. (alltaf þegar hamborgarar eru steiktir á vélinni kemur alltaf hellingur af fitu og sú fita festist við eldavélina ef hun er ekki þurkuð af … svo hún er þurkuð með 2 verkfærum. fyrst er notuð járnskafa sem nær skítinum af og síðan er notuð gúmmískafa sem sópar skítinum ofaní þessa renninga sem svo eru tæmdir og þrifnir á kvöldin.

Svo ég komi aftur að því sem er svo sjokkerandi við þetta allt er að þegar ég var að fara þrífa þennan renning þá rann alveg hellingur af þessum skít á gólfið því hann er opinn á báða vegu og er dáldið langur.

Það er ekki frásögu færandi nema að þessi fituskítur sem hefur legið í sjálfum sér í heilann dag lítur alveg eins út og sósan sem notuð er í Big Tasty hamborgaran og hefur sömu áferð og lykt og allt (þorði nu ekki að smakka þennan viðbjóð þannig ég get ekki með fullri vissu sagt að það sé sama bragð en samt er þetta nú e-ð dularfullt)

Svo er ég með annað atvik en einusinni var ég að steikja hamborgara þarna og fékk svona steikingarskít á hendina af hamborgurunum og ég lét þetta vera í svona 5 minutur því það var dáldið mikið að gera. Svo þegar ég ætlaði að þrífa á mer hendina þá tók ég bara sápu og ætlaði að skrúbba þetta af en ekki fór þessi skítur, ég setti meiri sápu og fór í sturtu og reyndi eins og ég gat til að nudda þetta af (ég nuddaði á mer hendina þangað til hun varð rauð) síðan fór ég að sofa. Næsta dag þá vaknaði ég og áttaði mig á að þessi bévitans skítur var ennþá á hendinni á mer. eins og hann hefði gróið sig einhvernvegin í hendina á mer. Hann fór svo eftir 2 sturtuferðir í viðbót og svitabað í ræktinni. En þetta fær mann dálítið til að hugsa hvað maður sé að setja ofan í sig þegar svona skítur fer ekki af húðinni eftir itrekaðan þvott. Hvað ætli hann geri við innyflin?

eg er buinn að segja nokkrum frá þessu og allir smem eg hef hef sagt þetta hafa hætt að borða þarna.