Já, try catch er ekki alltaf nauðsynlegt en getur verið mjög gagnlegt til að gera það sem kallað er að grípa villur sem gætu komið upp hvar sem er innan einhverrar ákveðinnar blokkar af kóða. Það sem gerist þá þegar/ef villa kemur upp er það að upplýsingar um villuna (hvers eðlis hún er hvar hún kom upp) eru vistaðar í breytu sem þú skilgreinir þegar þú býrð til try catch blokina. Í þessu tilfelli kalla ég breytuna ex, út frá orðinu exception, en svona villur sem við vitum kannski ekki alveg...