Hvort ætti maður að fara á Selfoss eða á Melgerðismela… hummm erfitt að segja. Það er bara ekki hægt að velja. Ég verð þá bara heima og les fyrir JAR prófin. Jibbí
Apocalisp!!! Hverjum ætlaru að selja flugvellina? Og Reykjavíkurflugvöllur á að vera áfram, hann skiptir miklu máli fyrir landsbyggðarfólk sem þurfa að sækja þjónustu til Reykjavíkur og fyrir sjúkraflug. Það er ekki til betri staður fyrir hann.
Hæ! Þú getur ekkert notað sólópróf eitt og sér. Sóló er bara einn áfangi til að verða einkaflugmaður. Með því að vera með sólópróf mátt þú ekki fljúga nema með leyfi flugkennara. En einkaflugið kostaði ca. 700 þúsund fyrir mig og ég er nýbúinn að klára það.
Í morgunblaðinu þann 31. janúar stendur að þetta hafi verið Gullfaxi sem hafði viðdvöl á Íslandi þann 30. janúar. Og síðan fann ég það á netinu að gamli Gullfaxi ber einkennisstafina N936UP í dag. Ég verð að hætta að lesa moggann ef ekkert er að marka það sem stendur í honum.
Það væri náttúrlega langbest að hafa þennan heimavistarskóla á Egilstöðum. Kýlum bara á þetta, tökum lán og auglýsum í Flight international. “Learn to fly in Iceland near the famous lagarfljots worm.”
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..