Ég mundi segja að ég væri galopinn fyrir tónlist, og mun meira en flestir hérna inni sem segjast hlusta á allt. Eina ástæðan fyrir því að mér finnst eitthvað leiðinlegt er að ég hef heyrt lögin eða svipaða tónlist of oft og er kominn með leið á henni, en ég er reyndar mjög fljótur að fá leið á hlutum og eftir að ég er kominn með leið á þeim vill ég ekki sjá þá aftur. Ég hef átt uppáhalds hljómsveitir úr öllum stefnum og það er ekkert sem mér finnst of mikið væl, suð, hart eða asnalegt svo ég...