jæja er ekki komin tími fyrir þennan kork?

ok, eins og flestir vita er 10-11 dýrasta búð landsins.. samt sem áður kemur fólk og verslar.. ég meina þú veist að það er allt 100-400% dýrara hérna heldur en í Bónus en samt þarf sumt fólk endilega að kvarta undan verðinu! ég er að vinna hérna ég veit að það er allt dýrt og búið að hækka þú þarft ekki að segja mér það! það varst þú sem ákvaðst að versla hérna samt sem áður! og ég get í rauninni ekkert gert í því að verðið er svona hátt! þetta var þér að kenna að gleymdir að kaupa rjóma og þurftir að koma í 10-11 og kaupa 1/4 líter af rjóma á 239 kr eða líter af mjólk á 102 kr..

en já eins og sést er ég bitur starfsmaður 10-11 og þakka pent fyrir ef einhver tekur þetta til sín og gerir líf okkar stafsmanna djöfulsins aðeins þolanlegara:D