þetta endalausa ferðalag ferðalag um óskijanlegan veruleika veruleika sem er ekki til blekking, lygar, svik hvað meinar þú eiginlega með þessu? “it´s now safe to turn off your computer…” ertu´að gera grín að mér?
Hvað kemur fyrir þann sem að hefur drepið mann? Er réttlætanlegt að drepa hann? auga fyrir auga,tönn fyrir tönn. -en hvað með tannlæknana? Hvað er rétt , hvað er rangt? hvers er því að ráða? er hefndin réttlætanleg?
til Færeyja fluttist ég, fagurt þar er. fljótlega fréttist, að frá Færeyjum eigi ég er. Kom þá hópur manna, vildu hrekja mig burt. Ég sagði þeim öllum, að ég yrði um kjurrt. Þeir tóku því illa og brutu minn fót. Nú ég öryrki er, á ei aura minna bót.
ég starði út um gluggann vindurinn hljóp hjá hann bankar á dyrnar ég opna þær vindurinn segir: -áttu dót á tombólu? (mér hefur alltaf verið kennt að vera góður við aumingja) svo ég sagði við vindinn: -komdu endilega inn, fáðu þér kaffisopa meðan ég kanna málið. vindurinn horfði á mig með sínum blíðu augum, deplaði þeim einsog saklaus hvolpur og sagði lox: -ég vil ekkert ANSVÍTANS kaffi, ég vil DÓT á TOMBÓLU og það STRAX!!
undir rúmminu mínu, búa rassálfar rassálfar fortíðarinnar halda fyrir mér vöku´allar nætur segjandi sögur af mér öskrandi, æpandi, hlæjandi kátir hæðast þeir að mér.
Oft hefur maður heyrt einhvern segja : “við erum það sem við borðum” ég hef verið svolítið að pæla í þessum orðum. Kýr éta gras, við borðum kýrnar, ef við erum það sem við borðum erum við þá ekki gras? Svo þegar við deyjum, þá rotnum við, verðum aftur að grasi og þarna er komin hringrás lífsins. Er gras undirstaða alls lífs á jörðinni? einnig væri hægt að segja… ef við erum það sem við borðum og kúkum því sem við borðum… erum við þá ekki kúkur?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..