ég starði út um gluggann
vindurinn hljóp hjá
hann bankar á dyrnar
ég opna þær

vindurinn segir:
-áttu dót á tombólu?
(mér hefur alltaf verið kennt að vera góður við aumingja)
svo ég sagði við vindinn:
-komdu endilega inn, fáðu þér kaffisopa meðan ég kanna málið.

vindurinn horfði á mig með sínum blíðu augum,
deplaði þeim einsog saklaus hvolpur og sagði lox:
-ég vil ekkert ANSVÍTANS kaffi, ég vil DÓT á TOMBÓLU og það
STRAX!!